Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

458/2017

Reglugerð um (11.) breytingu á reglugerð nr. 878/2014 um sæfivörur.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast fimm nýir töluliðir, svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1936 frá 4. nóvember 2016 um að samþykkja kalsíumoxíð (brennt kalk) sem fyrirliggjandi virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokkum 2 og 3, sem vísað er til í tl. 12zzzzh, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 53/2017, þann 17. mars 2017. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 24 frá 20. apríl 2017, bls. 608-610.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/2288 frá 16. desember 2016 um að samþykkja píperónýlbútoxíð sem fyrirliggjandi virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 18, sem vísað er til í tl. 12zzzzi, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 54/2017, þann 17. mars 2017. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 31 frá 18. maí 2017, bls. 123-125.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/2289 frá 16. desember 2016 um að samþykkja epsílon-momflúortrín sem fyrirliggjandi virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 18, sem vísað er til í tl. 12zzzzj, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 54/2017, þann 17. mars 2017. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 31 frá 18. maí 2017, bls. 126-128.
  4. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/2290 frá 16. desember 2016 um að samþykkja perediksýru sem fyrirliggjandi virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokkum 11 og 12, sem vísað er til í tl. 12zzzzk, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 54/2017, þann 17. mars 2017. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 31 frá 18. maí 2017, bls. 129-131.
  5. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/2291 frá 16. desember 2016 um að samþykkja L(+)-mjólkursýru sem virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 1, sem vísað er til í tl. 12zzzzl, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 54/2017, þann 17. mars 2017. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 31 frá 18. maí 2017, bls. 132-134.

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirtöldum EES-gerðum:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1936 frá 4. nóvember 2016 um að samþykkja kalsíumoxíð (brennt kalk) sem fyrirliggjandi virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokkum 2 og 3.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/2288 frá 16. desember 2016 um að samþykkja píperónýlbútoxíð sem fyrirliggjandi virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 18.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/2289 frá 16. desember 2016 um að samþykkja epsílon-momflúortrín sem fyrirliggjandi virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 18.
  4. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/2290 frá 16. desember 2016 um að samþykkja perediksýru sem fyrirliggjandi virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokkum 11 og 12.
  5. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/2291 frá 16. desember 2016 um að samþykkja L(+)-mjólkursýru sem virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 1.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 3. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013 og öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 24. maí 2017.

F. h. r.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.