Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

1039/2016

Reglugerð um (6.) breytingu á reglugerð nr. 544/2015 um plöntuverndarvörur.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast 4 nýir töluliðir, svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/370 frá 15. mars 2016 um samþykki fyrir virka efninu pínóxaden, í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1107/2009 um setningu plöntuverndarvara á markað, og breytingu á viðaukanum við framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 540/2011 og heimild til aðildarríkjanna að framlengja bráðabirgðamarkaðsleyfi fyrir plöntuverndarvörum sem innihalda þetta virka efni, sem vísað er til í tölul. 13zzzzzza í XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 181/2016 frá 23. september 2016. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 57, 13. október 2016, bls. 8-12.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/389 frá 17. mars 2016 um endurnýjun á samþykki fyrir virka efninu asíbensólar-S-metýli, í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1107/2009 um setningu plöntuverndarvara á markað, og um breytingu á viðaukanum við framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 540/2011, sem vísað er til í tölul. 13zzzzzzb í XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 182/2016 frá 23. september 2016. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 57, 13. október 2016, bls. 13-16.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/636 frá 22. apríl 2016 um að afturkalla samþykki fyrir virka efninu Z,Z,Z,Z-7,13,16,19-dókósatetraen-1-ýl-ísóbútýrati, í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1107/2009, og um breytingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 540/2011, sem vísað er til í tölul. 13zzzzzzc í XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 183/2016 frá 23. september 2016. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 57, 13. október 2016, bls. 329-330.
  4. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/638 frá 22. apríl 2016 um að afturkalla samþykki fyrir virka efninu Z-13-hexadeken-11-ýn-1-ýlasetati, í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1107/2009, og um breytingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 540/2011, sem vísað er til í tölul. 13zzzzzzd í XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 183/2016 frá 23. september 2016. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 57, 13. október 2016, bls. 331-332.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á eftirfarandi EES-gerðum:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/370 frá 15. mars 2016 um samþykki fyrir virka efninu pínóxaden, í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1107/2009 um setningu plöntuverndarvara á markað, og breytingu á viðaukanum við framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 540/2011 og heimild til aðildarríkjanna að framlengja bráðabirgðamarkaðsleyfi fyrir plöntuverndarvörum sem innihalda þetta virka efni.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/389 frá 17. mars 2016 um endurnýjun á samþykki fyrir virka efninu asíbensólar-S-metýli, í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1107/2009 um setningu plöntuverndarvara á markað, og um breytingu á viðaukanum við framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 540/2011.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/636 frá 22. apríl 2016 um að afturkalla samþykki fyrir virka efninu Z,Z,Z,Z-7,13,16,19-dókósatetraen-1-ýl-ísóbútýrati, í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1107/2009, og um breytingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 540/2011.
  4. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/638 frá 22. apríl 2016 um að afturkalla samþykki fyrir virka efninu Z-13-hexadeken-11-ýn-1-ýlasetati, í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1107/2009, og um breytingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 540/2011.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 3. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 16. nóvember 2016.

F. h. r.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.