Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

917/2015

Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 415/2014 um flokkun, merkingu og umbúðir efna og efnablandna.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist einn nýr stafliður, k-liður, sem orðast svo:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/491 frá 23. mars 2015 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 605/2014 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og pökkun efna og blandna í því skyni að innleiða hættusetningar og varnaðarsetningar á króatísku og til að laga hana að framförum á sviði tækni og vísinda, sem vísað er til í tölulið 12zze, XV. kafla, II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 152/2015, þann 11. júní 2015. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 46 frá 20. ágúst 2015, bls. 860-861.

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirfarandi EES-gerð:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/491 frá 23. mars 2015 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 605/2014 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1272/2008 um flokkun, merkingu og pökkun efna og blandna í því skyni að innleiða hættusetningar og varnaðarsetningar á króatísku og til að laga hana að framförum á sviði tækni og vísinda.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 2. tölul. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 1. október 2015.

F. h. r.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.