1. gr.
9. gr. reglugerðarinnar ásamt fyrirsögn orðist svo:
Almennur leiðréttingarstuðull.
Almennur leiðréttingarstuðull á viðskiptatímabilinu 1. janúar 2013 til 31. desember 2020 kemur fram í viðauka við reglugerð þessa.
2. gr.
Við 21. gr. bætist nýr stafliður, svohljóðandi:
e) |
Ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar 2013/447/ESB frá 5. september 2013 um staðlaða stuðulinn fyrir nýtingu afkastagetu skv. 2. mgr. 18. gr. ákvörðunar 2011/278/ESB, sem vísað er til í tölulið 21alca, III. kafla, XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 238/2013, frá 13. desember 2013, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af reglugerð þessari, XX. viðauka samningsins, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Ákvörðunin er birt í fylgiskjali 4 við reglugerð þessa. |
3. gr.
Lagastoð og gildistaka.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 11. mgr. 10. gr. laga nr. 70/2012 um loftslagsmál.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 17. janúar 2014.
F. h. r.
Stefán Thors.
Hugi Ólafsson.
VIÐAUKI
(sjá PDF-skjal)
Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)