1614/2023
Reglugerð um breytingu á reglugerð um skoðun ökutækja, nr. 414/2021.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á ákvæði til bráðabirgða við reglugerðina:
- Hvar sem orðin "1. janúar 2024" koma fyrir í 1. mgr. kemur: 1. júlí 2024.
- Í stað orðanna "1. janúar 2024" í 2. mgr. kemur: 1. júlí 2024.
- Í stað orðanna "1. janúar 2024" í 2. málsl. 4. mgr. kemur: 1. janúar 2025.
- Í stað orðanna "1. júlí 2022" í 5. mgr. kemur: 1. júlí 2024.
- Í stað orðanna "1. janúar 2024" í 8. mgr. kemur: 1. júlí 2024.
2. gr.
Lagastoð og gildistaka.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 74. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 19. desember 2023.
Sigurður Ingi Jóhannsson.