1. gr.
Í stað orðanna "25 m.kr." í c-lið 7. gr. reglugerðarinnar kemur: 31,6 m.kr. á ári sem tekur árlegum breytingum í samræmi við vísitölu byggingarkostnaðar mælda í janúar ár hvert, í samanburði við vísitölu byggingarkostnaðar mælda í maí 2022.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er á grundvelli 1. mgr. 18. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 1. júní 2022.
Sigurður Ingi Jóhannsson.
Ragnhildur Hjaltadóttir.