1. gr.
19. gr. reglugerðarinnar orðist svo:
Skoðun ekjuferja og háhraðafarþegafara.
Samgöngustofa annast skoðun ekjuferja og háhraðafarþegafara í innananlandssiglingum á hafsvæði A í samræmi við ákvæði reglugerðar um skoðanakerfi fyrir öruggan rekstur ekjufarþegaskipa og háhraðafarþegafara í áætlunarferðum. Þar sem ákvæðum þeirrar reglugerðar sleppir skal beita 17. gr. að breyttu breytanda.
Samgöngustofa annast skoðun ekjuferja og háhraðafarþegafara í millilandasiglingum í samræmi við ákvæði reglugerðar um hafnarríkiseftirlit, nr. 816/2011, með áorðnum breytingum. Þar sem ákvæði þeirrar reglugerðar sleppir skal beita 18. gr. að breyttu breytanda.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 4. mgr. 1. gr. laga um eftirlit með skipum nr. 47/2003 með áorðnum breytinum og öðlast þegar gildi.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 26. nóvember 2020.
F. h. r.
Sigurbergur Björnsson.
Eggert Ólafsson.