1. gr.
Hvar sem orðið "Vegagerðin", í hvers konar beygingarfalli, kemur fyrir í reglugerðinni, kemur í viðeigandi beygingarfalli: Samgöngustofa.
2. gr.
20. gr. reglugerðarinnar sem kveður á um akstur sérútbúinna bifreiða verður svohljóðandi:
Samgöngustofa skal veita leyfi til reksturs sérútbúinna bifreiða, sem m.a. eru ætlaðar til aksturs utan þjóðvega og eru notaðar í tengslum við ferðaþjónustu. Umsækjandi skal jafnframt hafa almennt rekstrarleyfi til fólksflutninga frá Samgöngustofu.
Til að öðlast leyfi til reksturs sérútbúinna bifreiða þarf bifreiðin að uppfylla eftirfarandi skilyrði:
Leyfi til reksturs sérútbúinna bifreiða er einungis veitt til rekstraraðila og skal gilda í fimm ár þó aldrei lengur en sem nemur gildistíma almenna rekstrarleyfisins til fólksflutninga. Leyfið er óframseljanlegt. Ökutæki skulu vera merkt rekstraraðila.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 18. gr. laga um fólksflutninga og farmflutninga á landi nr. 73/2001, öðlast þegar gildi.
Innanríkisráðuneytinu, 17. ágúst 2016.
Ólöf Nordal.
Ragnhildur Hjaltadóttir.