1. gr.
Hvar sem orðið "vegamálastjóri", í hvers konar beygingarfalli, kemur fyrir í reglugerðinni, kemur í viðeigandi beygingarfalli: Vegagerðin.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. reglugerðarinnar:
2. mgr. fellur brott.
Við greinina bætist ný málsgrein, sem verður 3. mgr., svohljóðandi:
Ef rannsóknarskýrsla er samin til að greina kringumstæður atviksins eða slyssins sem um getur í 2. mgr. eða þær niðurstöður sem af því má draga skal stjórnandi jarðgangnanna senda þá skýrslu til öryggisfulltrúans, Vegagerðarinnar og neyðarþjónustu eigi síðar en mánuði eftir að hann fær hana í hendur.
3. gr.
3. málsl. 2. mgr. 6. gr. orðast svo:
Ráðstafanir samkvæmt þessari málsgrein eru háðar samþykki Vegagerðarinnar og skal gerð viðeigandi grein fyrir þeim í samræmi við ákvæði tilskipunar 2004/54/EB.
4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr.:
1. mgr. orðast svo:
Ný jarðgöng skulu hönnuð í samræmi við kröfur í I. viðauka og tekin í notkun í samræmi við málsmeðferð sem mælt er fyrir um í II. viðauka.
2. mgr. fellur brott.
5. gr.
8. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
Eftirlit með framkvæmd öryggismála í jarðgöngum.
Samgöngustofa hefur eftirlit með því að fylgt sé ákvæðum reglugerðar þessarar um öryggi í jarðgöngum.
6. gr.
3. mgr. 9. gr. fellur brott.
7. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 10. gr. reglugerðarinnar:
1. mgr. orðast svo:
Vegagerðin skal ganga úr skugga um að fram fari reglubundnar skoðanir á þeim öryggisþáttum sem kveðið er á um í reglugerð þessari. Reglubundnar skoðanir skulu framkvæmdar eigi sjaldnar en á sex ára fresti af aðilum sem óháðir eru stjórnanda jarðgangna og starfa eftir verklagsreglum sem tryggja gæði.
Við greinina bætist ný málsgrein, sem verður 3. mgr., svohljóðandi:
Ef ráðstafanir til úrbóta fela í sér verulegar breytingar á byggingu eða rekstri jarðgangna skal afla nýs samþykkis fyrir jarðgöngin í samræmi við málsmeðferðina sem mælt er fyrir um í II. viðauka.
8. gr.
Innleiðing.
Reglugerð þessi er sett með hliðsjón af kröfum þeim sem gerðar eru í tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2004/54/EB frá 29. apríl 2004 um lágmarksöryggiskröfur fyrir jarðgöng í samevrópska vegakerfinu, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á XIII. viðauka við EES-samninginn nr. 10/2006, frá 1. desember 2006, sem birtist í EES-viðauka nr. 17/2006, bls. 11.
9. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 42. og 46. gr. vegalaga nr. 80/2007 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Innanríkisráðuneytinu, 8. maí 2015.
F. h. r.
Sigurbergur Björnsson.
Marta Jónsdóttir.