1. gr.
2. málsgrein 12. gr. hljóði svo:
Á grundvelli skrár um fullnýtingu tekjustofna sveitarfélaga skal reikna út eftirtalin meðaltöl á hvern íbúa:
2. gr.
Ákvæði til bráðabirgða breytist og verður svohljóðandi:
Við útreikning jöfnunarframlaga, skv. d-lið 7. gr., a- og b-lið 8. gr., sbr. 12. og 13. gr. skulu framlög til þeirra sveitarfélaga þar sem heildarskatttekjur eru a.m.k. 50% umfram landsmeðaltal, þ.e. útsvar og fasteignaskattur á hvern íbúa miðað við fullnýtingu þeirra tekjustofna, vera sem hér segir:
Frá og með 1. janúar 2012 nemur skerðing framlaganna 50%.
Frá og með 1. janúar 2013 falla framlögin niður.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett á grundvelli 18. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.
Innanríkisráðuneytinu, 27. júlí 2012.
Ögmundur Jónasson.
Ragnhildur Hjaltadóttir.