1. gr.
4. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður svohljóðandi:
Hafi framangreind skilyrði fyrir úthlutun a.m.k. 2/3 hluta aflaheimilda sem koma til úthlutunar til fiskiskips á grundvelli reglugerðar þessarar á fiskveiðiárinu ekki verið uppfyllt 15. júlí 2008 fellur niður úthlutun þeirra aflaheimilda sem óráðstafað er og skal Fiskistofa úthluta þeim aflaheimildum til annarra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði fyrir úthlutun í viðkomandi byggðarlagi í samræmi við skiptingu samkvæmt viðeigandi úthlutunarreglum.
2. gr.
Í stað ákvæðis til bráðabirgða kemur nýtt ákvæði til bráðabirgða sem verður svohljóðandi:
Þrátt fyrir ákvæði 10. gr. er heimilt að úthluta aflaheimildum samkvæmt reglugerð nr. 440/2007, um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga, til einstakra skipa til 31. ágúst 2008. Aflamark sem úthlutað er eftir 1. september 2007 tilheyrir fiskveiðiárinu sem hófst 1. september 2007.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 4. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi og kemur til framkvæmda fyrir fiskveiðiárin 2006/2007 og 2007/2008.
Sjávarútvegsráðuneytinu, 13. desember 2007.
F. h. r.
Jón B. Jónasson.
Sigríður Norðmann.