1. gr.
1. málsliður 1. mgr. 6. gr. orðast svo:
Þrátt fyrir ákvæði 2. gr. skal lágmarksmöskvastærð í vörpu við veiðar á úthafskarfa vera 100 mm og sé notuð klæðning í hluta vörpunnar skal lágmarksmöskvastærð klæðningarinnar vera hin sama.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 28. maí 2008.
F. h. r.
Steinar Ingi Matthíasson.
Hrefna Gísladóttir.