Allar veiðar á síld úr norsk-íslenska síldarstofninum eru óheimilar nema að fengnu sérstöku leyfi Fiskistofu. Við veitingu leyfa koma aðeins til greina skip sem aflamark hafa í síld úr norsk-íslenska síldarstofninum.
Leyfi, sbr. 1. gr., tekur til veiða á síld úr norsk-íslenska síldarstofninum í lögsögu Íslands, Færeyja og á alþjóðlega hafsvæðinu milli Íslands og Noregs. Við veiðar í lögsögu Færeyja skal farið að reglum sem stjórnvöld þar setja um veiðarnar. Einnig tekur leyfið til veiða í lögsögu Svalbarða. Við veiðar þar skal farið að reglum sem norsk stjórnvöld setja um veiðarnar, enda séu þær settar á grundvelli samningsins um Svalbarða frá 9. febrúar 1920 og í samræmi við ákvæði hans.
Ráðuneytið hefur ákveðið að svo stöddu skuli heimilt að veiða samtals 157.700 lestir af norsk-íslenskri síld á árinu 2005.
Um tilkynningar við síldveiðar á alþjóðlegu hafsvæði gilda ákvæði reglugerðar nr. 447/1999, um veiðieftirlit á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC) með síðari breytingum og taka þær tilkynningar einnig til veiða innan lögsögunnar. Um tilkynningar vegna veiða innan lögsögu Færeyja fer samkvæmt reglum færeyskra stjórnvalda.
Síldarafla skal landað og hann veginn í íslenskri höfn. Þó er heimilt, að fengnu leyfi Fiskistofu, að landa síldarafla til bræðslu í fiskimjölsverksmiðju í erlendri höfn, enda liggi fyrir að eftirlit með löndun og vigtun sé fullnægjandi að mati Fiskistofu. Þá er heimilt að landa síld til manneldis í erlendri höfn, enda sé síldin seld á opinberum fiskmörkuðum þar sem vigtunaraðferðir og eftirlit er viðurkennt af Fiskistofu. Þegar að löndun lokinni skal skipstjóri senda Fiskistofu staðfest afrit af vigtunarnótu.
Heimilt er að landa óvigtaðri síld um borð í vinnsluskip enda tilkynni skipstjóri veiðiskips Fiskistofu fyrirfram hvaða vinnsluskip taki aflann og áætlað löndunarmagn. Strax að lokinni löndun síldarinnar um borð í vinnsluskip, skal skipstjóri veiðiskips senda Fiskistofu endanlegar tölur um landaðan afla og aflaverðmæti, staðfestar af móttakanda síldarinnar. Þá er og heimilt að miðla afla úr nót til skips, sem leyfi hefur til síldveiða í því skyni að koma í veg fyrir að síld sé sleppt dauðri úr nótum.
Um vigtun á síld gilda að öðru leyti ákvæði reglugerðar nr. 522/1998, um vigtun sjávarafla með síðari breytingum, þó þannig að vegna vatnsinnihalds í síld skulu 2 % af afla hvers skips, miðað við afla upp úr sjó, ekki dragast frá aflaheimildum þess.
Þegar norsk-íslensk síld er reiknuð til þorskígilda skal miðað við verðmætastuðulinn 0,11.
Brot á reglugerð þessari og ákvæðum leyfisbréfa gefnum út með stoð í henni varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 151, 27. desember 1996, um veiðar utan lögsögu Íslands, með síðari breytingum. Með mál út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála.
Vegna afla umfram leyfilegt hámark skal beita ákvæðum laga nr. 37, 27. maí 1992, um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla. Jafnframt er Fiskistofu heimilt að svipta skip leyfi til síldveiða vegna brota á reglugerð þessari.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 151, 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, með síðari breytingum til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.