6. gr. orðist svo:
Hvert veiðileyfi skal bundið við ákveðið veiðisvæði og veiðitíma. Er leyfilegur veiðitími á hverju veiðisvæði sem hér segir:
A: | Fyrir Vesturlandi, frá línu réttvísandi vestur frá Garðskagavita að línu réttvísandi vestur frá Dritvíkurflögum, er veiðitímabilið 1. apríl - 29. júní. |
B: | Í Breiðafirði, frá línu réttvísandi vestur frá Dritvíkurflögum að línu réttvísandi vestur frá Bjargtöngum, er veiðitímabilið 1. apríl - 29. júní. |
Þó er veiðitímabilið 10. maí - 7. ágúst innan línu, sem dregin er úr Krossnesvita, vestan Grundarfjarðar, í Lambanes, vestan Vatnsfjarðar. | |
Séu grásleppuveiðar hafnar fyrir 10. maí samkvæmt þessum lið skal veiðum viðkomandi báts hætt eigi síðar en 29. júní. | |
C: | Fyrir Vestfjörðum, frá línu réttvísandi vestur frá Bjargtöngum að línu réttvísandi norður frá Horni, skulu veiðileyfishafar velja milli þess að stunda veiðar innan veiðitímabilsins 5. apríl - 3. júlí eða veiðitímabilsins 10. maí - 7. ágúst. |
D: | Í Húnaflóa, frá línu réttvísandi norður frá Horni að línu réttvísandi norður frá Skagatá, er veiðitímabilið 15. mars - 12. júní. |
E: | Fyrir Norðurlandi, frá línu réttvísandi norður frá Skagatá að línu réttvísandi austur frá Fonti á Langanesi, er veiðitímabilið 20. mars -17. júní. |
F: | Fyrir Austurlandi, frá línu réttvísandi austur frá Fonti á Langanesi að línu réttvísandi austur frá Hvítingum, er veiðitímabilið 20. mars - 17. júní. |
G: | Fyrir Suðurlandi, frá línu réttvísandi austur frá Hvítingum að línu réttvísandi vestur frá Garðskagavita, skulu veiðileyfishafar velja milli þess að stunda veiðar innan veiðitímabilsins 5. mars - 2. júní eða veiðitímabilsins 5. apríl - 3. júlí. |
Veiðileyfishöfum er óheimilt að leggja grásleppunet fyrir kl. 08.00 fyrsta dag veiðitímabils. Skylt er að draga öll grásleppunet, sbr. 8. gr., úr sjó fyrir lok veiðitímabils sbr. 1. mgr. þessarar greinar. Óheimilt er að stunda veiðar með rauðmaganetum, sbr. 8. gr., frá 15. júní til 31. desember ár hvert.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum 7. gr. laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til að öðlast þegar gildi.