Sjávarútvegsráðuneyti

483/2003

Reglugerð um stjórn veiða íslenskra skipa úr norsk-íslenska síldarstofninum árið 2003. - Brottfallin

1. gr.

Allar veiðar á síld úr norsk-íslenska síldarstofninum eru óheimilar nema að fengnu sérstöku leyfi Fiskistofu. Við veitingu leyfa koma aðeins til greina skip sem aflamark hafa í síld úr norsk-íslenska síldarstofninum.


2. gr.

Leyfi, sbr. 1. gr., tekur til veiða á síld úr norsk-íslenska síldarstofninum í lögsögu Íslands, Færeyja, Noregs og Jan Mayen og á alþjóðlega hafsvæðinu milli Íslands og Noregs. Við veiðar í lögsögu Færeyja, Noregs og Jan Mayen skal farið að reglum sem stjórnvöld í viðkomandi landi setja um veiðarnar. Um veiðar í lögsögu Noregs gilda og ákvæði 2. mgr. 3. gr.


3. gr.

Á tímabilinu 5. maí til 31. desember 2003 er íslenskum skipum heimilt að veiða samtals 103.234 lestir af síld.

Heimilt er íslenskum skipum á árinu 2003 að veiða 12.000 lestir af síld í efnahagslögsögu Noregs. Aðeins er heimilt að veiða norðan 62° N og utan 12 sjómílna frá grunnlínum.


4. gr.

Aflamark þeirra skipa sem aflamark áttu þann 26. júní 2003 skal skerðast um samtals 7.100 lestir. Aflamark hvers skips skal skerðast í hlutfalli við stöðu aflamarks þess á þeim sama tíma. Jafnframt fá þessi skip heimild til að veiða samtals 12.000 lestir í efnahagslögsögu Noregs, sbr. 3. gr. Skal þeirri heimild skipt í sama hlutfalli og getið er í 2. málsl.

Heimilt er að flytja sérstaklega milli skipa þann hluta aflamarks sem hverju skipi er heimilt að veiða við Noreg. Fiskistofu skal tilkynnt um slíkan flutning.


5. gr.

Um tilkynningar við síldveiðar á alþjóðlegu hafsvæði gilda ákvæði reglugerðar nr. 447/1999, um veiðieftirlit á samningssvæði (NEAFC) Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar, með síðari breytingum og taka þær tilkynningar einnig til veiða innan lögsögunnar. Um tilkynningar vegna veiða innan lögsögu Færeyja og Noregs fer samkvæmt reglum hlutaðeigandi stjórnvalda.


6. gr.

Síldarafla skal landað og hann veginn í íslenskri höfn. Þó er heimilt, að fengnu leyfi Fiskistofu, að landa síldarafla til bræðslu í fiskimjölsverksmiðju í erlendri höfn, enda liggi fyrir að eftirlit með löndun og vigtun sé fullnægjandi að mati Fiskistofu. Þá er heimilt að landa síld til manneldis í erlendri höfn, enda sé síldin seld á opinberum fiskmörkuðum þar sem vigtunaraðferðir og eftirlit er viðurkennt af Fiskistofu.

Heimilt er að landa óvigtaðri síld um borð í vinnsluskip enda tilkynni skipstjóri veiðiskips Fiskistofu fyrirfram hvaða vinnsluskip taki aflann og áætlað löndunarmagn. Strax að lokinni löndun síldarinnar um borð í vinnsluskip, skal skipstjóri veiðiskips senda Fiskistofu endanlegar tölur um landaðan afla og aflaverðmæti, staðfestar af móttakanda síldarinnar. Þá er og heimilt að miðla afla úr nót til skips, sem leyfi hefur til síldveiða í því skyni að koma í veg fyrir að síld sé sleppt dauðri úr nótum.

Um vigtun á síld gilda að öðru leyti ákvæði reglugerðar nr. 522/1998, um vigtun sjávarafla, með síðari breytingu, þó þannig að vegna vatnsinnihalds í síld skulu 13% af afla hvers skips, miðað við afla upp úr sjó, ekki dragast frá aflaheimildum þess.

Þegar norsk-íslensk síld er reiknuð til þorskígilda skal miðað við verðmætastuðulinn 0,12.


7. gr.

Brot á reglugerð þessari og ákvæðum leyfisbréfa gefnum út með stoð í henni varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 151, 27. desember 1996, um veiðar utan lögsögu Íslands, með síðari breytingum. Með mál út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála.

Vegna afla umfram leyfilegt hámark skal beita ákvæðum laga nr. 37, 27. maí 1992, um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla. Jafnframt er Fiskistofu heimilt að svipta skip leyfi til síldveiða vegna brota á reglugerð þessari.


8. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 151, 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, með síðari breytingum til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli, jafnframt er felld út gildi reglugerð nr. 312, 2. maí 2003, um stjórn veiða íslenskra skipa úr norsk-íslenska síldarstofninum árið 2003.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 1. júlí 2003.

Árni M. Mathiesen.
Kolbeinn Árnason.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica