Eigendur fiskiskipa sem fá úthlutað aflaheimildum þann 1. september 2002 skulu greiða gjald er nemur 1.358 krónum á hvert úthlutað þorskígildstonn miðað við verðmætahlutföll einstakra tegunda samkvæmt 3. gr. Gjaldið fellur í gjalddaga með þremur jöfnum greiðslum; þann 1. september 2002, 1. janúar 2003 og 1. maí 2003. Eigandi fiskiskips er fær úthlutun á öðrum tíma innan fiskveiðiársins skal greiða jafnhátt gjald vegna þeirrar úthlutunar. Gjaldið fellur í gjalddaga með þremur jöfnum greiðslum. Fari úthlutun fram á fyrsta ársþriðjungi fiskveiðiársins fellur gjaldið í gjalddaga þann 1. janúar 2003, 1. maí 2003 og 1. september 2003. Fari úthlutun fram á öðrum ársþriðjungi fiskveiðiársins fellur gjaldið í gjalddaga 1. maí 2003, 1. september 2003 og 1. janúar 2004. Fari úthlutun fram á þriðja ársþriðjungi fiskveiðiársins fellur gjaldið í gjalddaga 1. september 2003, 1. janúar 2004 og 1. maí 2004. Fari stjórn fiskveiða krókabáta fram með öðrum hætti en úthlutun aflaheimilda á grundvelli aflahlutdeildar eða krókaaflahlutdeildar skal eigandi báts greiða 1.358 kr. af hverju lönduðu þorskígildistonni viðkomandi báts, í tegundum þar sem hann er ekki bundinn aflatakmörkunum en sæta ákvörðun um heildarafla, á tímabilinu 1. ágúst 2001 til 31. júlí 2002 miðað við skráningu aflans í aflaupplýsingakerfi Fiskistofu. Miða skal við verðmætastuðla samkvæmt 3. gr. Gjaldið fellur í gjalddaga með þremur jöfnum greiðslum; 1. september 2002, 1. janúar 2003 og 1. maí 2003.
Hafi greiðsla fyrir gjald skv. 1. gr. ekki borist innan mánaðar frá gjalddaga á þann bankareikning sem tilgreindur er á reikningi skv. 4. gr. fellur veiðileyfi viðkomandi fiskiskips niður án frekari viðvörunar. Hæstu lögleyfðu dráttarvextir reiknast á vanskil frá gjalddaga ef ekki er greitt innan mánaðar frá gjalddaga.
Við útreikning þorskígildisstuðla við álagningu gjalds skv. 1. gr. skal miða við eftirfarandi þorskígildisstuðla: Þorskur 1,00, ýsa 1,20, ufsi 0,48, karfi 0,54, langa 0,88, keila 0,54, steinbítur 0,69, úthafskarfi 0,58, skötuselur 1,98, gulllax 0,43, grálúða 1,62, skarkoli 1,28, þykkvalúra 1,62, langlúra 0,70, sandkoli 0,47, skrápflúra 0,48, norsk-íslensk síld 0,12, síld 0,16, loðna 0,05, kolmunni 0,05, humar (slitinn) 7,15, rækja af Flæmingjagrunni 0,97, innfjarðarækja 0,52, úthafsrækja 0,71 og hörpudiskur 0,25.
Fiskistofa annast innheimtu gjaldsins og sendir eiganda fiskiskips reikning vegna gjalds þessa. Á reikningi skal koma fram að um sé að ræða innheimtu á gjaldi skv. lögum nr. 92/1994 um Þróunarsjóð sjávarútvegsins sem renni til Þróunarsjóðs. Ennfremur skal koma fram úthlutað magn eða viðmiðunarafli viðkomandi fiskiskips, gjald á þorskígildistonn, heildarfjárhæð gjalds, gjalddagar gjaldsins og aðrir greiðsluskilmálar ásamt númeri bankareiknings sem greiða ber inn á. Gjaldið er ekki endurkræft enda þótt úthlutuð þorskígildistonn verði ekki nýtt. Eigandi fiskiskips er gjaldskyldur vegna úthlutaðra þorskígildistonna þótt aflaheimildir verði framseldar á annað fiskiskip.
Fiskistofa skal halda fjárreiðum vegna innheimtu þessarar aðgreindum frá bókhaldi sínu og skal standa Þróunarsjóði sjávarútvegsins skil á innheimtu gjaldsins eins fljótt og auðið er, þó ekki sjaldnar en einu sinni í mánuði. Þróunarsjóður sjávarútvegsins skal greiða Fiskistofu samkvæmt reikningi kostnað vegna innheimtu þeirrar sem Fiskistofa annast skv. reglugerð þessari.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 92/1994 um Þróunarsjóð sjávarútvegsins með síðari breytingum og öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 636, 26. ágúst 2001, um greiðslu gjalds til Þróunarsjóðs sjávarútvegsins fiskveiðiárið 2001/2002.