670/2001
Reglugerð um bann við línuveiðum á grunnslóð við Vestfirði. - Brottfallin
1. gr.
Á tímabilinu 9. september til 15. október 2001 eru allar línuveiðar bannaðar á grunnslóð við Vestfirði á svæði sem markast af línum sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:
1. |
66°19´80 N – 23°49´00 V |
2. |
66°14´60 N – 23°24´00 V |
3. |
66°11´90 N – 23°27´00 V |
4. |
66°09´80 N – 23°34´00 V |
5. |
66°04´40 N – 23°46´30 V |
6. |
66°11´20 N – 24°10´10 V |
2. gr.
Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.
Sjávarútvegsráðuneytinu, 7. september 2001.
Árni M. Mathiesen.
Þórður Eyþórsson.