Veflestur er þjónusta ætluð þeim sem einhverra hluta vegna eiga erfitt með að lesa texta af skjá
Sjávarútvegsráðuneyti

363/2001

Reglugerð um rækjuveiðar á Breiðafirði. - Brottfallin

1. gr.

Á tímabilinu 12. maí til 30. júní 2001, er skipum sem eru 105 brl. að stærð eða minni og hafa aflamark í úthafsrækju heimilt að stunda rækjuveiðar á Breiðafirði utan línu sem dregin er réttvísandi norður frá Krossnessvita, sunnan 65°10´N, enda séu þau búinn seiðaskilju sbr. reglugerð nr. 304 3. maí 1999, um úthafsrækjusvæði og notkun seiðaskilju við rækjuveiðar.


2. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt lögum nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.


3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 10. maí 2001.

Árni M. Mathiesen.
Jón B. Jónasson.

Prenta reglugerð

Þetta vefsvæði byggir á Eplica