REGLUGERÐ
um verndun smáfisks við tog- og dragnótaveiðar fyrir Suðausturlandi.
1. gr.
Allar veiðar með fiskivörpu og dragnót eru bannaðar á svæði fyrir Suðausturlandi, sem markast af línu, sem dregin er milli eftirgreindra punkta:
1. |
64°23,90'N - 14°28,00'V |
20. |
63°23,40'N - 16°16,60'V |
2. |
64°33,00'N - 13°23,00'V |
21. |
63°21,80'N - 16°33,70'V |
3. |
64°33,00'N - 12°40,00'V |
22. |
63°21,40'N - 16°56,00'V |
4. |
64°25,00'N - 12°34,00'V |
23. |
63°18,70'N - 16°59,70'V |
5. |
64°16,00'N - 12°46,80'V |
24. |
63°16,50'N - 17°00,00'V |
6. |
64°08,00'N - 13°02,55'V |
25. |
63°13,30'N - 17°36,00'V |
7. |
64°05,76'N - 13°14,40'V |
26. |
63°14,70'N - 17°36,00'V |
8. |
63°54,00'N - 14°11,00'V |
27. |
63°14,50'N - 17°44,20'V |
9. |
63°50,30'N - 14°07,80'V |
28. |
63°12,70'N - 17°55,00'V |
10. |
63°48,00'N - 14°07,20'V |
29. |
63°11,90'N - 18°04,90'V |
11. |
63°39,60'N - 14°36,30'V |
30. |
63°12,80'N - 18°13,10'V |
12. |
63°41,10'N - 14°38,20'V |
31. |
63°13,35'N - 18°30,00'V |
13. |
63°43,50'N - 14°42,40'V |
32. |
63°16,00'N - 18°54,00'V |
14. |
63°36,30'N - 14°52,40'V |
33. |
63°20,00'N - 19°20,00'V |
15. |
63°31,50'N - 15°21,70'V |
34. |
63°21,60'N - 19°39,50'V |
16. |
63°33,80'N - 15°26,30'V |
35. |
63°16,00'N - 20°02,50'V |
17. |
63°30,90'N - 15°40,80'V |
36. |
63°16,00'N - 20°22,00'V |
18. |
63°29,10'N - 15°41,30'V |
|
og þaðan í réttvísandi 016° til lands |
19. |
63°23,60'N - 16°10,00'V |
|
|
Að norðan markast svæðið af fjörumarki.
2. gr.
Þrátt fyrir ákvæði 1. gr. eru eftirgreindar veiðar heimilar á svæðinu:
A. Veiðar með fiskivörpu, enda sé varpan búin smáfiskaskilju í samræmi við ákvæði viðauka við reglugerð nr. 486, 4. ágúst 1998, um gerð og búnað smáfiskaskilju.
B. Til 31. desember 1999 eru veiðar með fiskivörpu heimilar þeim togbátum sem taka vörpuna inn á síðunni, enda séu vörpur þeirra búnar leggglugga.
C. Veiðar með fiskivörpu á tímabilinu frá og með 1. maí til og með 30. júní og frá og með 15. nóvember til og með 28. febrúar á eftirgreindu svæði, enda séu vörpurnar búnar leggglugga:
1. |
64°11,00 N - 15°42,50 V |
4. |
64°24,00 N - 14°30,00 V |
2. |
63°57,70 N - 15°28,70 V |
5. |
64°14,00 N - 14°56,00 V |
3. |
64°24,00 N - 14°16,60 V |
|
|
D. Dragnótaveiðar, þeim bátum sem tilskilin leyfi hafa, enda sé dragnótin búin leggglugga.
3. gr.
Heimildir til veiða með fiskivörpu á framangreindu svæði takmarkast af ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og reglugerðum settum með stoð í þeim lögum, sbr. 9. tl. 1. gr. reglugerðar nr. 341/1997, um friðunarsvæði við Ísland.
4. gr.
Legggluggi, samkvæmt 2. gr., er netstykki, sem skorið er á legg og komið fyrir á efra byrði pokans (belgsins) þannig:
1. Lengd gluggans skal minnst vera 4 metrar.
2. Aftari jaðar gluggans skal vera mest 5 metrum frá pokaenda.
3. Þegar glugginn er saumaður við upptöku pokans (belgsins) skal taka tvær upptökur á móti einum legg. Lengdarhliðar gluggans skulu festar slétt við neðra byrði í leisi pokans (belgsins).
4. Möskvastærð í glugganetinu skal ekki vera minni en möskvastærð riðilsins í pokanum. Séu veiðar stundaðar með leggglugga skal lágmarksmöskvastærð gluggastykkisins og þar fyrir aftan vera 135 mm.
5. gr.
Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.
6. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast gildi 24. júní 1999 og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli. Frá sama tíma er felld úr gildi reglugerð nr. 498, 12. ágúst 1998, um verndun smáfisks við tog- og dragnótaveiðar fyrir Suðausturlandi með síðari breytingum.
Sjávarútvegsráðuneytinu, 18. júní 1999.
Árni M. Mathiesen.
Þorsteinn Geirsson.