REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 304, 14. ágúst 1992,
um leyfi til fullvinnslu botnfiskafla um borð í veiðiskipum.
1. gr.
Í stað orðanna: "1. september 1994" í síðasta málslið 11. gr. reglugerðarinnar komi: 1. september 1995.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 54, 16. maí 1992, um fullvinnslu botnfiskafla um borð í veiðiskipum til þess að öðlast þegar gildi.
Sjávarútvegsráðuneytið, 9. ágúst 1994.
Þorsteinn Pálsson.
Jón B. Jónasson.