1. gr.
Fyrir fiskveiðiárið 1. september 2000 til 31. ágúst 2001 er leyfilegur heildarafli sem hér segir:
Tegund Lestir
Þorskur 220.000
Ýsa 30.000
Ufsi 30.000
Karfi 57.000
Grálúða 20.000
Steinbítur 13.000
Skarkoli 4.000
Langlúra 1.100
Sandkoli 5.500
Skrápflúra 5.000
Þykkvalúra 1.400
Síld 110.000
Úthafsrækja 20.000
Humar 1.200
Hörpudiskur 9.300
Innfjarðarækja 2.200
Ákvörðun um leyfilegan heildarafla fyrir innfjarðarækju verður endurskoðuð að fengnum nýjum tillögum Hafrannsóknastofnunarinnar.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett skv. 3. gr. laga nr. 38, 15. maí 1990, um stjórn fiskveiða með síðari breytingum til þess að öðlast þegar gildi.
Sjávarútvegsráðuneytinu, 15. júní 2000.
Árni M. Mathiesen.
Jón B. Jónasson.