1. gr.
Gildissvið.
Reglugerð þessi tekur til veiða íslenskra skipa á kolmunna í fiskveiðilandhelgi Íslands, fiskveiðilandhelgi Færeyja og á veiðistjórnunarsvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC).
2. gr.
Leyfi til veiða.
Aðeins er þeim íslenskum fiskiskipum heimilt að stunda veiðar á kolmunna, sem hafa aflamark í kolmunna.
Heimilt er hverju skipi að veiða allt að 5% umfram aflamark í kolmunna á viðkomandi almanaksári og dregst sá umframafli frá aflamarki þess á næsta almanaksári. Þá er heimilt að flytja allt að 10% af ónýttu aflamarki fiskiskips frá viðkomandi almanaksári til næsta almanaksárs. Flutningsheimildir samkvæmt þessari grein eiga einnig við um aflaheimildir sem skip fá úthlutað af aflamagni sem dregið er frá upphaflegri úthlutun.
3. gr.
Lokunarsvæði.
Óheimilt er að stunda kolmunnaveiðar vestan 20°30´ V og innan línu fyrir Suður- og Austurlandi sem dregin er milli eftirgreindra punkta:
og þaðan réttvísandi í 305° að mörkum fiskveiðilögsögunnar.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. eru kolmunnaveiðar heimilar innan íslenskrar lögsögu vestan 27°30´V.
Veiðar með kolmunnavörpu við Þórsbanka eru aðeins heimilar að varpan sé búin meðaflaskilju í samræmi við ákvæði reglugerðar um gerð og útbúnað meðaflaskilju við veiðar á uppsjávarfiski. Svæðið markast af línum sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:
4. gr.
Búnaður.
Skipum sem stunda kolmunnaveiðar er óheimilt að vera með þannig útbúnað að mögulegt sé að dæla úr tönkum skips undir yfirborði sjávar.
5. gr.
Fjarskiptabúnaður.
Fiskiskip sem stunda kolmunnaveiðar á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafs-fiskveiðinefndarinnar (NEAFC) skulu búin fjarskiptabúnaði sem sendir upplýsingar um staðsetningu, stefnu og hraða viðkomandi skips á klukkustundar fresti, með sjálfvirkum hætti, til sameiginlegrar eftirlitsstöðvar Landhelgisgæslunnar og Fiskistofu, hér eftir nefnd Eftirlitsstöðin, sem miðlar gögnum til hlutaðeigandi stofnana.
Óheimilt er að halda til veiða fyrr en starfsmenn Eftirlitsstöðvarinnar hafa staðfest að fjarskiptabúnaður starfi eðlilega. Skulu sendingar samkvæmt framangreindu hefjast þegar viðkomandi skip lætur úr höfn og skal þeim ekki ljúka fyrr en skipið kemur til hafnar að nýju til löndunar afla.
Ef búnaður til sjálfvirkra sendinga bilar skal gert við hann svo fljótt sem mögulegt er, þó eigi síðar en að 30 dögum liðnum. Þar til búnaðurinn verður kominn í lag skal senda á annan hátt upplýsingar um staðsetningu skipsins á a.m.k. 4 klukkustunda fresti til Eftirlitsstöðvarinnar.
6. gr.
Tilkynningar.
Um tilkynningar við kolmunnaveiðar á alþjóðlegu hafsvæði gilda ákvæði reglugerðar um veiðieftirlit á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC) og taka þær tilkynningar einnig til veiða innan lögsögunnar sem og veiða í færeyskri lögsögu.
Um tilkynningar til Færeyja vegna veiða innan færeysku lögsögunnar fer samkvæmt reglum færeyskra stjórnvalda.
Skipstjóri skal hafa samband við stjórnstöð Landhelgisgæslu Íslands, sem sinnir verkefnum Eftirlitsstöðvarinnar, til staðfestingar á að honum sé heimilt að hefja veiðar.
Eftirlitsstöðin hefur eftirlit með að fjöldi íslenskra skipa við veiðar innan færeyskrar lögsögu fari ekki umfram þann leyfilega fjölda sem landstjórn Færeyja ákveður á hverjum tíma og að ekki séu fleiri en 15 íslensk skip samtímis á veiðum.
Eftir að skip hættir veiðum og í síðasta lagi fjórum klukkustundum áður en áætlað er að það komi til hafnar skal skipstjóri senda Fiskistofu tilkynningu á því formi sem Fiskistofa ákveður um áætlaðan afla skipsins, fyrirhugaðan löndunarstað og löndunartíma. Heimilt er að víkja frá lágmarkstíma t.d. ef fjarlægð milli fiskimiða og löndunarhafnar gefur tilefni til þess, enda sé þá tilkynning send um leið og veiðum er hætt.
7. gr.
Landanir.
Kolmunnaafla skal landað og hann veginn í íslenskri höfn. Um vigtun á kolmunna gilda ákvæði reglugerðar um vigtun sjávarafla, þó þannig að draga skal frá 2% af afla hvers skips vegna vatnsinnihalds í kolmunna miðað við afla upp úr sjó fari afli til manneldis og reiknast það magn ekki til aflaheimilda þess.
Heimilt er þó með leyfi Fiskistofu að landa kolmunnaafla og kolmunnaafurðum í höfnum erlendis enda sé tryggt að eftirlit með vigtun aflans sé fullnægjandi að mati Fiskistofu. Jafnframt er heimilt að fengnu leyfi Fiskistofu að landa óvigtuðum kolmunna um borð í vinnsluskip og flutningaskip, enda sé tryggt að skráning og vigtun afla sé fullnægjandi að mati Fiskistofu. Sækja skal um leyfi til löndunar kolmunna utan íslenskra hafna til Fiskistofu og skal skipstjóri tilgreina í umsókn nákvæmlega hvar hann hyggst landa aflanum og áætla magn kolmunna. Áætli skip komu til hafnar samningsaðila NEAFC með afla af samningssvæði NEAFC, hvort heldur til löndunar, umskipunar eða til að leita þjónustu að öðru leyti, skal tilkynna þar til bæru yfirvaldi í viðkomandi ríki um komu skips til hafnar innan tiltekins frests sem ákveðinn er af hafnarríkinu í samræmi við reglur NEAFC um hafnarríkiseftirlit og framkvæmd þess Tilkynningar skal senda með rafrænum hætti á heimasíðu NEAFC, https://psc.neafc.org. Frekari upplýsingar má finna á slóðinni https://psc.neafc.org/ designated-contacts.
Þegar að löndun lokinni skal skipstjóri veiðiskips senda Fiskistofu endanlegar tölur um landaðan afla og aflaverðmæti, staðfestar af móttakanda kolmunnans eða staðfest afrit af vigtarnótu, liggi það fyrir.
8. gr.
Sýnataka.
Kolmunnasýni skulu tekin úr afla, a.m.k. eitt í hverri veiðiferð og skal skrá sýnatökuna í afladagbók skipsins. Í hverju sýni skulu vera a.m.k. 50 stykki af kolmunna sem valin eru af handahófi. Sýnin skulu fryst um borð, rækilega merkt (staður, dagsetning og dýpi) og send Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna, að lokinni veiðiferð.
9. gr.
Viðurlög.
Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða.
10. gr.
Gildistaka og lagastoð.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum 8. gr., 11. gr og 16. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, 8. gr. og 9. gr. og 14. gr. laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, 2. gr., 3.gr., 9. gr. og 30. gr. laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar og 7. gr. og 19. gr. laga nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands.
Reglugerðin öðlast gildi 1. janúar 2024. Jafnframt falla úr gildi frá sama tíma reglugerð nr. 696/2005 um bann við kolmunnaveiðum á Þórsbanka án meðaflaskilju og reglugerð nr. 1444/2022, um togveiðar á kolmunna árið 2023.
Matvælaráðuneytinu, 21. desember 2023.
Svandís Svavarsdóttir.
Benedikt Árnason.