1. gr.
Ákvæði til bráðabirgða verður svohljóðandi:
Þrátt fyrir bann við síldveiðum með flotvörpu skv. 2. gr. reglugerðarinnar eru veiðar á íslenskri sumargotssíld heimilar í friðunarhólfi vestur af landinu sem tilgreint er í 1. og 2. tl. 1. gr. reglugerðar nr. 310/2007, um friðunarsvæði við Ísland.
Ákvæði þetta gildir til og með 1. mars 2018.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 2. nóvember 2017.
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
Jóhann Guðmundsson.
Baldur P. Erlingsson.