1. gr.
1. mgr. 12. gr. orðist svo:
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 3. gr. er skipstjórum skipa sem eru 45 brúttótonn eða stærri heimilt að halda afladagbók á bókarformi til 1. apríl 2008. þá er skipstjórum skipa, sem eru minni en 45 brúttótonn, heimilt að halda afladagbók á bókarformi til 1. júlí 2009.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum og laga nr. 151, 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, með síðari breytingum til þess að öðlast þegar gildi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 22. september 2008.
F. h. r.
Steinar Ingi Matthíasson.
Þórður Eyþórsson.