1. gr.
Við 8. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Heimilt er að nota kjötmjöl og tólg í fóður fyrir loðdýr, sem í eru aukaafurðir úr 2. áhættuflokki, enda falli þær ekki undir a-, c-, d-, g-, i- eða k-lið 4. gr.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 96/1997 um eldi og heilbrigði sláturdýra, slátrun, vinnslu, heilbrigðisskoðun og gæðamat á sláturafurðum, lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, með síðari breytingum og lögum nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru. Reglugerðin er sett með hliðsjón af reglugerðum nr. 999/2001/EB og nr. 1774/2002/EB.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 8. júlí 2008.
F. h. r.
Kristinn Hugason.
Arnór Snæbjörnsson.