1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XII. kafla, II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirfarandi EB gerðir gildi hér á landi:
a) Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 123/2005 frá 26. janúar 2005 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 466/2001 að því er varðar okratoxín A. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 97 frá 8. júlí 2005 og var birt í EES-viðbæti nr. 60 frá 24. nóvember 2005.
b) Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 78/2005 frá 19. janúar 2005 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 466/2001 að því er varðar þungmálma. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 97 frá 8. júlí 2005 og var birt í EES-viðbæti nr. 60 frá 24. nóvember 2005.
2. gr.
Ofangreindar reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar eru birtar sem fylgiskjöl I og II við reglugerð þessa.
3. gr.
Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt nema annað sé ákveðið samkvæmt lögum eða stjórnvaldsfyrirmælum.
4. gr.
Með brot gegn reglugerð þessari skal farið samkvæmt lögum nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.
5. gr.
Reglugerð þessi sem sett er með stoð í 18. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 30. júní 2008.
F. h. r.
Sigurgeir Þorgeirsson.
Baldur P. Erlingsson.
Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)