Veflestur er þjónusta ætluð þeim sem einhverra hluta vegna eiga erfitt með að lesa texta af skjá
Sjávarútvegsráðuneyti

766/1999

Reglugerð um bann við veiðum með fiskbotnvörpu út af Víkuráli - Brottfallin

1. gr.

Frá og með 19. nóvember 1999 eru allar veiðar með fiskibotnvörpu óheimilar á svæði út af Víkuráli, sem markast af línum sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:

1.

 65°43_ N - 27°25_ V

3.

 66°00_ N - 26°50_ V

2.

 65°43_ N - 27°00_ V

4.

 66°00_ N - 27°05_ V

2. gr.

Brot á ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum samkvæmt 16. gr. laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 9. gr. laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Jafnframt er felld úr gildi reglugerð nr. 544, 11. ágúst 1999, um bann við veiðum með fiskibotnvörpu út af Víkuráli.

Sjávarútvegsráðuneytinu, 17. nóvember 1999.

Árni M. Mathiesen.

Jón B. Jónasson.

Prenta reglugerð

Þetta vefsvæði byggir á Eplica