1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í II. kafla I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 36/2023, frá 17. mars 2023, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/893 frá 7. júní 2022 um breytingu á VI. viðauka við reglugerð (EB) nr. 152/2009 að því er varðar greiningaraðferðir til að greina innihaldsefni úr landhryggleysingjum vegna opinbers eftirlits með fóðri. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 30, frá 20. apríl 2023, bls. 147.
2. gr.
Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, með síðari breytingum.
3. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 9. gr. og 9. gr. a - 9. gr. e laga nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.
4. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 5. júní 2023.
Svandís Svavarsdóttir.
Iðunn María Guðjónsdóttir.