1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í II. kafla I. viðauka og XII. kafla II. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. og II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 134/2007, frá 26. október 2007, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1660 frá 7. nóvember 2018 um setningu sérstakra skilyrða fyrir innflutningi á tilteknum matvælum, sem eru ekki úr dýraríkinu, frá tilteknum þriðju löndum vegna áhættu á mengun af völdum varnarefnaleifa, um breytingu á reglugerð nr. 669/2009 og um niðurfellingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 885/2014.
2. gr.
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar, sem nefnd er í 1. gr., er birt sem fylgiskjal við reglugerð nr. 1077/2018 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1660 um setningu sérstakra skilyrða fyrir innflutningi á tilteknum matvælum, sem eru ekki úr dýraríkinu, frá tilteknum þriðju löndum vegna áhættu á mengun af völdum varnarefnaleifa, um breytingu á reglugerð (EB) nr. 669/2009 og um niðurfellingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 885/2014.
3. gr.
Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar vegna matvælaeftirlits sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.
Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar vegna fóðureftirlits sé framfylgt í samræmi við lög nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, með síðari breytingum.
4. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli eða 9. gr. og 9. gr. a - 9. gr. e laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.
5. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli og 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 22. nóvember 2018.
Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Iðunn Guðjónsdóttir.