1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla, I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 103/2018, frá 31. maí 2018, öðlast eftirtalin ESB-gerð gildi hér á landi:
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/949 frá 2. júní 2017 um reglur um beitingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1760/2000 að því er varðar samsetningu auðkenniskóðans fyrir nautgripi og um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 911/2004. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 42, frá 28. júní 2018, bls. 135.
2. gr.
Eftirfarandi bætist við í viðauka framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar nr. 2017/949:
Ísland | IS | 352 |
Noregur | NO | 578 |
3. gr.
Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.
4. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr. og 30. gr. a - 30. gr. e laga nr. 93/1995 um matvæli.
5. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli og 13. gr. laga nr. 38/2013 um búfjárhald. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 8. nóvember 2018.
Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Iðunn Guðjónsdóttir.