1. gr.
Við reglugerðina bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Heimilt er að flytja allt að 25% af aflamarki humars frá fiskveiðiárinu 2015/2016 yfir á fiskveiðiárið 2016/2017.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum og laga nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 24. ágúst 2016.
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
Jóhann Guðmundsson.
Baldur P. Erlingsson.