1. gr.
Bráðabirgðaákvæði II við reglugerðina verður svohljóðandi:
Matvælastofnun er heimilt að breyta eldistegundum í fiskeldi í gildandi rekstrarleyfum fram til 31. desember 2015. Þó er óheimilt að breyta eldistegund gildandi rekstrarleyfis í rekstrarleyfi sjókvíaeldis til laxeldis. Skilyrði fyrir afgreiðslu Matvælastofnunar á slíkri umsókn er að rekstrarleyfishafi sýni fram á að rekstur hans hafi verið slysalaus síðastliðin fimm ár eða frá því að rekstur hófst.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 71/2008, um fiskeldi, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 20. október 2015.
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
Jóhann Guðmundsson.
Ásta Einarsdóttir.