Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

1160/2013

Reglugerð um gæðastýrða sauðfjárframleiðslu. - Brottfallin

1. gr.

Gæðastýrð sauðfjárframleiðsla.

Með gæðastýrðri sauðfjárframleiðslu er átt við framleiðslu sauðfjárafurða samkvæmt kröfum sem settar eru fram í þessari reglugerð um aðbúnað og umhverfi, sauðfjár­skýrsluhald, jarðrækt, fóðrun, heilsufar, lyfjanotkun, afurðir, landnýtingu og skyld atriði.

Sauðfjárframleiðendur sem uppfylla skilyrði um gæðastýrða sauðfjárframleiðslu á tímabilinu frá 1. janúar 2014 til 31. desember 2017 eiga rétt til sérstakra álagsgreiðslna úr ríkissjóði til samræmis við samning um starfsskilyrði sauðfjárræktar frá 25. janúar 2007, ásamt síðari breytingum.

I. KAFLI

Yfirstjórn og orðskýringar.

2. gr.

Stjórnsýsla.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur yfirstjórn mála samkvæmt þessari reglu­gerð.

Matvælastofnun fer með framkvæmd gæðastýrðrar sauðfjárframleiðslu.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra er heimilt að gera samninga við eftirlitsaðila (ríkis­stofnanir og/eða einkaaðila) um eftirlit og úttekt á landi sem nýtt er við gæðastýrða sauðfjárframleiðslu. Matvælastofnun er heimilt að annast öll þau verkefni sem lögð eru til þessa eftirlitsaðila.

3. gr.

Orðskýringar.

Merking hugtaka er sem hér segir:

  1. Afréttur: Land utan heimalanda og upprekstrarheimalanda sem framleiðendur hafa rétt til að nýta sameiginlega til beitar undir stjórn einnar eða fleiri sveitar­stjórna.
  2. Auðnir: Ógrónar eða lítt grónar landgerðir utan byggðar, með gróðurþekju minni en 20%, sem mynda samfelldar heildir í landslagi og eru mótaðar af mörgum ferlum jarðvegsrofs, t.d. urðir, melar, sandar, sendnir melar, hraun o.fl.
  3. Álagsgreiðsla: Tiltekin fjárhæð sem greiðist á gæðastýrða sauðfjárframleiðslu.
  4. Árangursmat: Mat eftirlitsaðila skv. 2. gr. á árangri landbóta samkvæmt landbótaáætlun.
  5. Ástand beitilands: Eiginleikar og samsetning gróðurs og jarðvegs í vistkerfi við­komandi landsvæðis, í samanburði við það sem telja má eðlilegt miðað við gott ástand lands og hóflega landnýtingu að mati eftirlitsaðila skv. 2. gr.
  6. Beitarfriðað svæði: Tiltekið landsvæði sem ekki er ætlað til beitar og tilgreint sem slíkt í landbótaáætlun.
  7. Búsnúmer: Landnúmer samkvæmt fasteignamati auk númers rekstrareiningar innan býlis.
  8. Framleiðandi: Hver sá sem framleiðir sauðfjárafurðir, hvort sem er einstaklingur, lögaðili, aðili að félagsbúi eða ríkisbú.
  9. Framleiðsluár: Almanaksár.
  10. Gæðahandbók: Handbók sem er ætlað að skjalfesta framleiðsluaðferðir og fram­leiðslu­aðstæður á sauðfjárbúum til hagnýtingar við ákvarðanatöku í rekstri og mark­aðs­setningu afurða. Matvælastofnun skal annast útgáfu, endurskoðun og dreifingu hennar. Heimilt er að gefa gæðahandbókina út í rafrænu formi.
  11. Heimaland: Land sem framleiðandi, eigandi eða ábúandi, hefur einn rétt til að nýta til beitar.
  12. Jarðvegsrof: Losun og flutningur jarðvegsefna eða yfirborðsefna sem rýrir land­gæði, s.s. jarðveg og gróður.
  13. Landbótaáætlun: Tímasett aðgerðaáætlun um úrbætur á ástandi lands skv. 15.-17. gr.
  14. Landbætur: Hvers kyns aðgerðir sem hafa það að markmiði að bæta ástand lands.
  15. Landnýting: Nýting lands til beitar.
  16. Rofsvæði: Svæði þar sem rofferlar, s.s. vind- og vatnsrof, eru virkir.
  17. Sjálfbær landnýting: Nýting sem ekki gengur á auðlindir lands, s.s. jarðveg, gróður og vatn og tryggir um leið viðgang og virkni vistkerfis til framtíðar.
  18. Stýriþættir: Þættir sem gefa viðbótarupplýsingar um land og nýtingu þess og geta haft áhrif á niðurstöðu vottunar, svo sem vísitegundir, landgerð, hæð yfir sjávar­máli, halli lands, önnur landnýting o.fl.
  19. Umhverfi: Nánasta nágrenni býlis þ.e. svæði í 50 metra radíus í kringum veg, heim­keyrslu og mannvirki.
  20. Umsjónarmaður gæðastýringar: Aðili sem framleiðandi tilnefnir skv. 5. gr.
  21. Upprekstrarheimaland: Eignarland tveggja eða fleiri jarða þar sem tveir eða fleiri framleiðendur geta farið sameiginlega með heimild til beitarnýtingar.

II. KAFLI

Umsóknir og skráningar.

4. gr.

Umsókn.

Framleiðandi sá sem óskar eftir að taka upp gæðastýrða sauðfjárframleiðslu á búi sínu skal senda skriflega umsókn til Matvælastofnunar á eyðublöðum sem stofnunin skal láta í té. Umsóknum skal skila eigi síðar en 20. nóvember ef framleiðandi óskar eftir álags­greiðslum fyrir næsta almanaksár.

Eftirfarandi upplýsingar skulu koma fram í umsókn:

 

a)

Nafn, kennitala og lögheimili framleiðanda, auk virðisaukaskattsnúmers.

 

b)

Nafn umsjónarmanns gæðastýringar ef við á.

 

c)

Jarðir, upprekstrarheimalönd og afréttir sem framleiðandi nýtir til beitar, tilgreint með nafni og landsnúmeri jarðar og eigenda þeirra. Skrifleg heimild til nýtingar lands þar sem framleiðandi fer ekki með heimild til nýtingar sem landeigandi eða ábúandi. Greina skal frá fjölda vetrarfóðraðs sauðfjár.

 

d)

Búsnúmer á því búi sem sótt er um gæðastýringu á.

 

e)

Greiðsluupplýsingar vegna álagsgreiðslna.



Matvælastofnun og eftirlitsaðilar í hennar umboði meta umsóknir og sannreyna hvort umsækjandi uppfylli skilyrði reglugerðarinnar.

5. gr.

Skráningar.

Matvælastofnun heldur skrá yfir umsækjendur og þá sem uppfyllt hafa skilyrði um gæða­stýrða sauðfjárframleiðslu.

Matvælastofnun lætur Bændasamtökum Íslands í té fyrir 10. desember hvers árs lista yfir þá framleiðendur sem eru í gæðastýrðri sauðfjárframleiðslu eða hafa sótt um inngöngu. Matvælastofnun skal sjá um að koma gæðahandbók til framleiðenda eða sjá til þess að handbókin sé aðgengileg á rafrænu formi fyrir árslok.

Tilkynna skal Matvælastofnun um breytingar á því hvaða framleiðandi stendur fyrir búi sem er í gæðastýrðri sauðfjárframleiðslu. Við slík framleiðandaskipti að búi heldur nýr framleiðandi rétti fráfarandi framleiðanda til álagsgreiðslna að uppfylltum öðrum skil­yrðum. Honum er skylt að sækja námskeið skv. 12. gr. í næsta skipti sem það er haldið.

Framleiðanda er heimilt að tilnefna umsjónarmann gæðastýringar á búinu. Viðkomandi skal vera 18 ára eða eldri og skal sækja námskeið skv. 12. gr. fyrir hönd búsins. Framleiðandi ber eftir sem áður einn ábyrgð á því að búið standist kröfur gæðastýringar samkvæmt ákvæðum reglugerðarinnar. Matvælastofnun skal halda skrá um tilnefnda umsjónarmenn.

Beiðni um að hætta í gæðastýrðri sauðfjárframleiðslu skal beint til Matvælastofnunar.

III. KAFLI

Skyldur framleiðanda við framleiðslu.

6. gr.

Gæðahandbók.

Í gæðahandbók skal skrá eftirgreindar upplýsingar um framleiðsluaðferðir og aðstæður á sauðfjárbúi:

  1. Áburðarnotkun. Um áburðarnotkun fer eftir almennum reglum um mengunarvarnir og umhverfisvernd, sbr. ákvæði laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og meng­unar­varnir, laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru og laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.
  2. Gróffóðuröflun og fóðrun á búinu. Um mat á fóðurmagni, fóðurgæðum og fóður­þörfum fer eftir ákvæðum laga nr. 38/2013 um búfjárhald og laga nr. 55/2013 um velferð dýra.
  3. Landnýtingu. Um landnýtingu fer skv. IV. kafla reglugerðarinnar.
  4. Lyfjakaup og lyfjanot. Í hversu miklu magni, hversu oft og lengi. Vanhöld sauð­fjár, þ.m.t. veikindi og slysfarir. Greina skal sjúkdóma eftir því sem kostur er. Sjúk­dóma- og lyfjaskráningar skulu vera rekjanlegar til einstakra gripa í hjörðinni. Skrá skal garnaveikibólusetningu, þar sem það á við.
  5. Umhverfi skv. 19. tl. 3. gr. reglugerðarinnar. Ástand og ásýnd umhverfis skv. 10. gr.

Loks skal skrá í gæðahandbók aðrar upplýsingar sem tilgreindar eru í leiðbeiningum um skráningu. Skráning skal hefjast eigi síðar en í upphafi þess árs sem framleiðandi tekur upp gæðastýrða sauðfjárframleiðslu.

Heimilt er að hagnýta skráningu í rafrænum gagnagrunni á vegum Bændasamtaka Íslands eða Matvælastofnunar við skráningu í rafræna gæðahandbók skv. 10. tl. 3. gr. reglugerðarinnar.

7. gr.

Aðbúnaður og meðferð.

Sauðfé skal njóta fullnægjandi aðbúnaðar, meðferðar og fóðrunar. Uppfylla skal kröfur um húsaskjól, aðbúnað og umhirðu sauðfjár til samræmis við ákvæði laga nr. 38/2013 um búfjárhald og laga nr. 55/2013 um velferð dýra.

8. gr.

Merkingar búfjár.

Fjárstofn skal merktur samkvæmt reglugerð nr. 916/2012 um merkingar búfjár. Einnig skal fé eyrnamarkað skv. 63. gr. laga nr. 6/1986 um afréttamálefni, fjallskil o.fl.

9. gr.

Skýrsluhald.

Fjárstofn skal skráður í skýrsluhaldskerfi Bændasamtaka Íslands. Sauðfjárskýrslum hvers árs skal skilað eigi síðar en 31. desember. Bændasamtök Íslands skulu senda til Matvælastofnunar skrá yfir þá framleiðendur sem skilað hafa skýrslum og þá fram­leiðendur sem ekki hafa skilað skýrslum eigi síðar 5. janúar. Matvælastofnun er skylt að tilkynna framleiðanda fyrir 15. janúar standist hann ekki kröfur varðandi skil. Fram­leiðanda skal veittur að hámarki fjögurra vikna frestur til að skila sauðfjárskýrslum og koma á framfæri andmælum sínum. Framleiðandi sem ekki skilar sauðfjárskýrslu innan frests telst ekki uppfylla skilyrði um gæðastýrða sauðfjárframleiðslu.

Framleiðendur sem eru að hefja þátttöku í gæðastýrðri sauðfjárframleiðslu en hafa til þess tíma ekki verið í skýrsluhaldi skulu senda vorupplýsingar úr sauðfjárskýrsluhaldi til Bændasamtaka Íslands eigi síðar en 20. júní.

Bændasamtök Íslands annast útgáfu, viðhald og dreifingu skýrsluhaldsgagna og leggja fram leiðbeiningar um notkun þeirra. Miðað skal við að unnt sé að rekja uppruna og afdrif allra gripa í hjörðinni á einfaldan og öruggan hátt.

Skrá skal að lágmarki eftirfarandi upplýsingar um fjárstofn búsins:

  1. Einstaklingsnúmer fyrir alla fullorðna gripi á búinu.
  2. Fjölda fæddra lamba hjá öllum ám á búinu.
  3. Einstaklingsnúmer fyrir öll lömb sem eru fædd lifandi.
  4. Fullorðinsnúmer ásetningsgripa fyrir lok fæðingarárs.
  5. Upplýsingar um afdrif allra lamba sem fæðast á búinu.
  6. Fallþunga sláturlamba.
  7. Upplýsingar um förgun og vanhöld allra fullorðinna gripa á búinu.

10. gr.

Umhverfi.

Umhverfi býlis skal standast kröfur samkvæmt viðauka III.

Við mat á kröfum til umhverfis er byggt á eftirfarandi þáttum:

  1. Ástandi girðinga.
  2. Ástandi umhverfis við mannvirki.
  3. Umhirðu og uppröðun lausra hluta.
  4. Lausum hlutum.

11. gr.

Bólusetning gegn garnaveiki.

Uppfylla skal skyldur til bólusetningar samkvæmt reglugerð nr. 911/2011 um garnaveiki og varnir gegn henni, ásamt síðari breytingum.

12. gr.

Undirbúningsnámskeið.

Framleiðendur sem sótt hafa um að taka upp gæðastýrða sauðfjárframleiðslu skulu sækja sérstakt undirbúningsnámskeið þar sem fjalla skal um þau atriði sem reglugerðin tilgreinir.

Umsjónarmanni skv. 4. mgr. 5. gr., sem framleiðandi tilnefnir, er skylt að sækja nám­skeið fyrir hans hönd.

IV. KAFLI

Landnýting framleiðanda og landbótaáætlun.

13. gr.

Meginreglur um landnýtingu.

Landnýting framleiðanda skal vera sjálfbær á öllu því landi sem hann tilgreinir í umsókn sinni og skal það land jafnframt standast viðmið um ástand samkvæmt þeim kröfum sem settar eru í viðauka I. Framleiðandi skal eingöngu nýta land sem tilgreint er í umsókn. Landbótaáætlun skv. 15. og 16. gr. skal gera fyrir beitiland sem uppfyllir ekki kröfur samkvæmt viðauka I. Framleiðandi sem ekki uppfyllir skilyrði um landnýtingu skv. IV. kafla uppfyllir ekki skilyrði um gæðastýrða sauðfjárframleiðslu.

14. gr.

Mat á landnýtingu.

Eftirlitsaðili skv. 2. gr. skal leggja mat á land framleiðenda sem óska eftir að taka upp gæðastýrða sauðfjárframleiðslu og tilkynna Matvælastofnun um niðurstöður sínar.

Matvælastofnun skal tilkynna framleiðendum ef þeir uppfylla ekki skilyrði 13. gr. og gefa þeim allt að þriggja mánaða frest til að setja sér landbótaáætlun skv. 15. og 16. gr.

15. gr.

Landbótaáætlun fyrir heimaland.

Framleiðandi gerir landbótaáætlun fyrir heimaland sitt til allt að 10 ára. Við gerð land­bóta­áætlunar fyrir heimaland skal framleiðandi leita umsagnar Landgræðslu ríkisins.

Matvælastofnun skal staðfesta með hliðsjón af umsögn Landgræðslu ríkisins að land­bóta­áætlun sé í samræmi við meginreglur skv. 13. gr. og viðauka I. Landbóta­áætlanir skulu gerðar í samræmi við viðauka II. Telji Matvælastofnun að landbóta­áætlun standist ekki ofangreindar kröfur skal stofnunin greina framleiðanda frá ástæðum þess og veita honum tveggja vikna frest til úrbóta.

16. gr.

Landbótaáætlun fyrir upprekstrarheimalönd og afrétti.

Landbótaáætlun framleiðenda fyrir upprekstrarheimalönd og afrétti til allt að 10 ára skal unnin í samráði allra framleiðenda sem nytja landið og óska þess að öðlast staðfestingu á gæðastýrðri sauðfjárframleiðslu. Við gerð landbótaáætlunar skulu framleiðendur, eftir því sem við á, hafa samráð við landeigendur, sveitarfélög og stjórnir fjallskiladeilda.

Framleiðendur skulu við gerð landbótaáætlunar fyrir afrétti leita umsagna viðkomandi fjallskiladeildar og Landgræðslu ríkisins skv. 16. gr. laga nr. 6/1986 um afréttamálefni, fjallskil o.fl. Einnig skal líta til 12. gr. sömu laga sé talin þörf sambærilegra ráðstafana fyrir upprekstrarheimalönd. Landbótaáætlanir skulu gerðar í samræmi við viðauka II.

Matvælastofnun skal staðfesta landbótaáætlun í samræmi við 2. mgr. 15. gr.

17. gr.

Landbótaáætlun.

Landbótaáætlun skal fela í sér ákvæði um fyrirhugaðan fjölda búfjár og eftir atvikum áætlun um landbætur s.s. uppgræðslu. Í landbótaáætlun skal skilgreina og afmarka á korti beitarsvæði og beitarfriðuð svæði sem framleiðendur hætta að nýta til beitar í samræmi við viðauka I.

Í landbótaáætlun skal tilgreina hvernig fara skuli með sauðfé sem finnst á beitarfriðuðum svæðum. Framleiðanda er óheimilt að beita fé vísvitandi á beitarfriðuð svæði.

Í landbótaáætlun þar sem fjallað er um uppgræðslu eða aðrar landbætur skal kveða á um markmið, umfang, staðsetningu og hver er ábyrgur fyrir framkvæmd. Við mat á nauðsynlegu umfangi landbóta skal mið tekið af því hversu langt frá viðmiðunarmörkum í viðauka I landið er.

Í landbótaáætlun þar sem fjallað er um landbætur skv. 15. og/eða 16. gr. skal tilgreina með hvaða hætti árangursmat á landbótum skuli fara fram. Við árangursmat skal metin gróðurhæð, gróðurþekja, hlutdeild einstakra tegundahópa í gróðurþekju eða aðrir þeir þættir sem geta talist mælikvarðar á árangri landbóta á hverjum tíma. Árangur landbóta skal metinn eigi sjaldnar en á fimm ára fresti. Eftirlitsaðili skv. 3. mgr. 2. gr. skal upplýsa Matvælastofnun um þau tilvik þar sem árangur er ekki metinn fullnægjandi.

Uppfylli framleiðandi ekki meginreglur 13. gr. skal Matvælastofnun tilkynna framleiðanda um ástæður þess og veita honum að hámarki þrjá mánuði til að uppfylla skilyrði reglugerðarinnar.

Framleiðandi sem ekki uppfyllir skilyrði í landbótaáætlun uppfyllir ekki skilyrði um gæðastýrða sauðfjárframleiðslu.

V. KAFLI

Eftirlit og ákvarðanir.

18. gr.

Eftirlit með landnýtingu og landbótum.

Matvælastofnun eða eftirlitsaðili skv. 3. mgr. 2. gr. hefur eftirlit með landnýtingu framleiðenda í gæðastýrðri sauðfjárframleiðslu og landbótaáætlun ef um hana er að ræða. Eftirlit skal byggt á tilviljunarkenndu úrtaki úr hópi framleiðenda, ásetningstölum úr eftirliti og ábendingum úr gróðureftirliti skv. III. kafla laga nr. 17/1965 og III. kafla laga nr. 6/1986 um afréttamálefni, fjallskil o.fl.

Matvælastofnun og eftirlitsaðili skal við eftirlit kanna hvort framleiðandi hefur heimild til nýtingar á því landi sem hann tilgreinir í umsókn sinni og getur krafið framleiðanda um gögn því til sönnunar. Framleiðandi sem vísvitandi nýtir land án heimildar uppfyllir ekki skilyrði um gæðastýrða sauðfjárframleiðslu. Matvælastofnun skal upplýsa landeiganda um beitarafnot annarra á jörð sinni ef landeigandi óskar þess.

19. gr.

Eftirlit Matvælastofnunar.

Matvælastofnun annast eftirlit með þeim skyldum framleiðanda sem tilgreindar eru í 6.-8. gr. og 10.-12. gr. reglugerðarinnar. Uppfylli framleiðandi ekki skilyrði gæðastýringar skal Matvælastofnun veita hæfilegan frest til úrbóta þó að hámarki fjögurra vikna frest.

Þegar grípa þarf til ráðstafana vegna vanfóðrunar, harðýðgi, slysa eða slæms aðbúnaðar hjá framleiðanda skv. 38. gr. laga nr. 55/2013 um velferð dýra eru skilyrði gæðastýringar ekki uppfyllt. Í slíkum tilfellum skal ekki veita frest til úrbóta.

20. gr.

Réttur til aðildar að gæðastýrðri sauðfjárframleiðslu.

Framleiðandi er aðili að gæðastýrðri sauðfjárframleiðslu á milli ára, án umsóknar, svo lengi sem hann uppfyllir skilyrði hennar og óskar ekki eftir að hún verði felld niður.

Matvælastofnun skal tilkynna framleiðanda eigi síðar en 31. ágúst ár hvert ef hann uppfyllir ekki skilyrði um gæðastýrða sauðfjárframleiðslu og gefa honum kost á andmælum. Stofnunin skal því næst tilkynna honum um hvort hann uppfylli skilyrði aðildar, þ.e. eigi rétt á álagsgreiðslum.

Ákvörðun Matvælastofnunar skv. 2. mgr. hvort framleiðandi uppfylli skilyrði gæðastýringar skal byggð á upplýsingum um landnýtingu og eftirlit. Einnig skal stofnunin byggja ákvörðun sína á öðrum gögnum sem hún aflar sér og varða skilyrði gæðastýringar samkvæmt III. og IV. kafla reglugerðarinnar. Hér má t.d. nefna upplýsingar sem aflað er samkvæmt reglugerð nr. 916/2012 um merkingar búfjár, reglugerð nr. 911/2011 um garnaveiki og varnir gegn henni og reglugerð nr. 651/2001 um útrýmingu á riðuveiki og bætur vegna niðurskurðar. Einnig má nefna upplýsingar sem stofnunin aflar sér um illa meðferð búfjár við eftirlit með búfjárhaldi samkvæmt lögum nr. 38/2013 um búfjárhald og lögum nr. 55/2013 um velferð dýra.

Framleiðandi sem uppfyllir ekki skilyrði aðildar að gæðastýrðri sauðfjárframleiðslu missir rétt til álagsgreiðslna í eitt ár en getur sótt um aðild að nýju næsta framleiðsluár, eftir endurnýjun umsóknar. Matvælastofnun er heimilt að krefjast þess að framleiðandi sem missir rétt til álagsgreiðslna í eitt ár skuli sækja undirbúningsnámskeið skv. 12. gr. að nýju.

Ákvörðun Matvælastofnunar samkvæmt þessari grein má kæra til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra innan þriggja mánaða, samkvæmt VII. kafla stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

VI. KAFLI

Álagsgreiðslur, gjalddagar o.fl.

21. gr.

Greiðsluálagning.

Fjárhæð álagsgreiðslna vegna gæðastýrðrar sauðfjárframleiðslu er háð samningi um starfsskilyrði sauðfjárræktar frá 25. janúar 2007, með síðari breytingum.

Greitt er álag á skrokka sem flokkaðir eru í gæðaflokka, E, U, R og O, og eru í fituflokkum 1, 2, 3 og 3+, sbr. I. viðauka reglugerðar nr. 882/2010, um gæðamat, flokkun og merkingu sláturafurða.

22. gr.

Gjalddagar.

Álagsgreiðslur greiðast eigi síðar en 25. nóvember og 20. desember ár hvert. 95% af álagsgreiðslum vegna framleiðslu í mánuðunum janúar til október skulu greiðast eigi síðar en 25. nóvember og 95% af álagsgreiðslum vegna framleiðslu í nóvember skulu greiðast eigi síðar en 20. desember. Lokauppgjör skal fara fram eigi síðar en 5. febrúar ár hvert.

Eigi síðar en 15. mars ár hvert skal greiða framleiðanda fyrirframgreiðslu sem nema skal 35% af þeirri fjárhæð sem var heildarálagsgreiðsla hans á næstliðnu ári enda hafi hann ekki óskað eftir því að hætta í gæðastýringu, skv. 5. gr., staðið skil á skýrsluhaldi skv. 9. gr. og skilað haustskýrslu úr eftirliti sem sýni að hann hafi sett fé á vetur. Sé ásetningur svo lítill að ætla megi fyrirframgreiðsluna hærri en ætlaða lokagreiðslu skv. 1. mgr. er Matvælastofnun þó heimilt að lækka fyrirframgreiðsluna að réttri tiltölu. Fyrirframgreiðsla þessi skal dregin frá við uppgjör sem fram fer eigi síðar en 25. nóvember, skv. 1. mgr.

Falli framleiðandi úr gæðastýrðri sauðfjárframleiðslu, skv. 20. gr., eða aðrar ástæður leiða til þess að fyrirframgreiðsla reynist byggð á röngum eða brostnum forsendum að hluta til eða öllu leyti ber honum að endurgreiða hana.

Matvælastofnun er heimilt að endurkrefja framleiðanda um fyrirframgreiðslu þótt nýr framleiðandi hafi tekið við búi og atvik sem rekja má til hans leiði til þess að bú uppfyllir ekki skilyrði 20. gr. enda er fyrirframgreiðsla innt af hendi með fyrirvara um að bú fullnægi skilyrðum gæðastýringar.

Matvælastofnun ber ekki að endurkrefja framleiðanda sem skráður var aðili að gæðastýringu þegar fyrirframgreiðsla var greidd þótt nýr framleiðandi hafi tekið við búinu þegar lokauppgjör fer fram. Sama gildir ef fyrirframgreiðsla gengur til fyrri framleiðanda þegar ekki hefur verið tilkynnt um aðilaskipti að búi, skv. 5. gr.

Matvælastofnun er heimilt að skuldajafna endurgreiðslukröfu vegna fyrirframgreiðslu skv. 3. mgr. við kröfu framleiðanda um greiðslu vegna greiðslumarks.

23. gr.

Uppgjör greiðslna.

Matvælastofnun heldur skrá yfir rétthafa álagsgreiðslna og annast uppgjör til þeirra.

Sé rétthafi lögaðili skal jafnframt skrá einstakling sem fer með fyrirsvar viðkomandi lögaðila.

Heimilt er að skrá fleiri en einn rétthafa á sama lögbýli. Skilyrði er að hver rétthafi fyrir sig skili forðagæsluskýrslu í eigin nafni og hafi sjálfstætt virðisaukaskattsuppgjör. Heimilt er að skýrsluhald sé sameiginlegt fyrir alla rétthafa á sama lögbýli.

VII. KAFLI

Viðurlög og gildistaka.

24. gr.

Viðurlög.

Brot gegn reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt lögum nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum. Með mál út af brotum skal farið samkvæmt lögum nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

25. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum, 29. gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim og 46. gr. laga nr. 55/2013 um velferð dýra. Reglugerðin öðlast gildi 1. janúar 2014.

Við gildistöku þessarar reglugerðar fellur úr gildi reglugerð nr. 10/2008 um gæðastýrða sauðfjárframleiðslu.

Ákvæði til bráðabirgða.

Framleiðendur sem eru aðilar að gæðastýrðri sauðfjárframleiðslu við gildistöku þessarar reglugerðar halda þeim rétti án sérstakrar umsóknar.

Þrátt fyrir 2. mgr. 5. gr. skulu Bændasamtök Íslands koma gæðahandbók fyrir árið 2014 til framleiðenda enda skal hún hafa borist framleiðendum fyrir árslok 2013 skv. 2. mgr. 5. gr. reglugerðar nr. 10/2008 um gæðastýrða sauðfjárframleiðslu. Gæðahandbók fyrir árið 2014 skal vera í samræmi við 6. gr. reglugerðar nr. 10/2008 um gæðastýrða sauðfjárframleiðslu.

Þrátt fyrir 1. mgr. 9. gr. skal framleiðandi fyrir árið 2013 skrá fjárstofn í skýrsluhaldskerfi Bændasamtaka Íslands og skila sauðfjárskýrslum eigi síðar en 1. febrúar 2014.

Landbótaáætlanir sem gerðar voru samkvæmt ákvæðum reglugerðar nr. 10/2008 um gæðastýrða sauðfjárframleiðslu skulu uppfærðar í samræmi við efni reglugerðar þessarar og skal því verki lokið fyrir 31. desember 2014.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 20. desember 2013.

Sigurður Ingi Jóhannsson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Rebekka Hilmarsdóttir.

VIÐAUKAR
(sjá PDF-skjal)

Reglugerð sem fellur brott:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica