1. gr.
Innleiðing.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í II. kafla í I. viðauka og XII. kafla, II. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. og II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 134/2007, frá 1. maí 2010, öðlast eftirfarandi ESB-gerðir gildi hér á landi:
2. gr.
Fylgiskjöl.
Reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar skv. 1. gr. eru birtar sem fylgiskjöl 1-4 við reglugerð þessa.
3. gr.
Eftirlit.
Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar vegna matvælaeftirlits sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.
Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar vegna fóðureftirlits sé framfylgt í samræmi við lög nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.
4. gr.
Þvingunarúrræði og viðurlög.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum eða 9. gr. og 9. gr. a - 9. gr. e laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, með síðari breytingum.
5. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi sem sett er samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli og 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 4. júní 2013. |
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, |
Ólafur Friðriksson. |
Baldur P. Erlingsson.
Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)