Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

913/2012

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 870/2010 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar nr. 953/2009 um efni, sem bæta má í matvæli til sérstakra, næringarlegra nota.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í XII. kafla, II. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 105/2012, frá 16. júní 2012, öðlast eftirfarandi ESB-gerð gildi hér á landi:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1161/2011 um breytingu á til­skipun Evrópuþingsins og ráðsins 2002/46/EB, reglugerð Evrópuþingsins og ráðs­ins (EB) nr. 1925/2006 og reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 953/2009 að því er varðar skrárnar yfir steinefni sem bæta má í matvæli. Reglu­gerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 59, frá 18. október 2012, bls. 525.

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar vegna matvæla­eftirlits sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli.

5. gr.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 31. október 2012.

F. h. r.

Sigurgeir Þorgeirsson.

Eggert Ólafsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica