1. gr.
Við 1. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar kemur nýr málsliður, svohljóðandi:
Eindagi þess hluta veiðigjalds sem fellur í gjalddaga 1. október 2012 er 1. desember 2012.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 74/2012 um veiðigjöld og laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 9. október 2012.
Steingrímur J. Sigfússon.
Arnór Snæbjörnsson.