1. gr.
Frá og með 15. september 2011 eru allar veiðar nema veiðar á uppsjávarfiski með flotvörpu og hringnót bannaðar á eftirgreindum svæðum:
A. Í Skeiðarárdýpi á svæði, sem markast af línum, sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:
B. Í Lónsdýpi á svæði, sem markast af línum, sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:
C. Út af Lónsdýpi og Papagrunni á svæði, sem markast af línum, sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:
D. Landgrunnskantur við Papagrunn á svæði, sem markast af línum, sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:
E. Í Rósagarði á svæði, sem markast af línum, sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:
2. gr.
Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum 17. gr. laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum 9. gr. laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 2. september 2011.
F. h. r.
Sigurgeir Þorgeirsson.
Brynhildur Bendiktsdóttir.