1. gr.
Frá og með 15. september 2011, til og með 15. nóvember 2011, eru allar veiðar bannaðar á svæði á Látragrunni sem markast af línum sem dregnar eru á milli eftirgreindra punkta:
2. gr.
Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 13. september 2011.
F. h. r.
Sigurgeir Þorgeirsson.
Indriði B. Ármannsson.