1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla, I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 21/2009 frá 1. maí 2010 öðlast eftirfarandi EB-gerðir gildi hér á landi:
2. gr.
Reglugerðir framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1082/2003 og nr. 499/2004 eru birtar sem fylgiskjöl við reglugerð þessa.
3. gr.
Tilvísanir í gerðum sem tilgreindar eru í 1. gr. er varða ákvæði í hinni sameiginlegu landbúnaðarlöggjöf Evrópusambandsins (CAP) gilda ekki við framkvæmd reglugerðar þessarar.
4. gr.
Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 93/1995 um matvæli.
5. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt XI. kafla laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.
6. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli og 17. gr. laga nr. 103/2002 um búfjárhald o.fl. og öðlast gildi 1. nóvember 2011.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 11. október 2011.
Jón Bjarnason.
Baldur P. Erlingsson.
Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)