1. gr.
Reglugerð þessi tekur til flotvörpuveiða íslenskra skipa vestan 22. gráðu vestlægrar lengdar úr úthafskarfastofnum á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC), utan þeirra svæða sem falla undir fiskveiðilögsögu samningsaðila og innan fiskveiðilandhelgi Grænlands, í samræmi við samning þjóðanna þess efnis. Ennfremur tekur reglugerð þessi til úthafskarfaveiða fiskiskipa, sem leyfi hafa til veiða í fiskveiðilandhelgi Íslands, er þau stunda veiðar á úthafskarfa með flotvörpu utan línu, sem dregin er milli eftirgreindra punkta:
Þá tekur reglugerðin til veiða á úthafskarfa sem veiddur er á svæðum 1f, 2g, 2h, 2j og 3k á samningssvæði Norðvestur-Atlantshafs fiskveiðistofnunarinnar, NAFO. Á árinu 2012 eru veiðar á úthafskarfa óheimilar á samningssvæði Norðvestur-Atlantshafs fiskveiðistofnunarinnar, NAFO.
2. gr.
Íslenskum fiskiskipum er óheimilt að stunda flotvörpuveiðar á úthafskarfa skv. 1. gr. án sérstaks leyfis Fiskistofu.
Aðeins er þeim íslenskum fiskiskipum heimilt að stunda veiðar á úthafskarfa í flotvörpu, sem hafa aflamark í úthafskarfa, sbr. 3. og 4. gr.
3. gr.
Fyrir tímabilið 1. janúar 2012 til 31. desember 2012 er leyfilegur heildarafli sem hér segir:
A |
B |
C |
Lestir |
Lestir |
Lestir |
9.926 |
132 |
9.794 |
Veiðar á úthafskarfa eru heimilar frá og með 10. maí og eru einungis leyfðar innan svæðis sem markast af eftirfarandi punktum:
Stundi skip veiðar með flotvörpu á svæði, sem skilgreint er í 1. mgr. þessarar greinar, reiknast allur karfaafli skipsins til aflamarks skipsins í úthafskarfa samkvæmt reglugerð þessari.
Á grundvelli aflahlutdeildar í úthafskarfa skal Fiskistofa úthluta hverju skipi aflamarki, eins og skilgreint er í 1. mgr. þessarar greinar.
4. gr.
Heimilt er að framselja aflahlutdeild og aflamark milli íslenskra fiskiskipa, samkvæmt þeim reglum, sem almennt gilda um framsal aflahlutdeildar og aflamarks samkvæmt lögum nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.
Ákvæði 11. gr. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða með síðari breytingum, gilda ekki um aflamark sem úthlutað er í úthafskarfa samkvæmt þessari reglugerð. Þó er heimilt að flytja allt að 5% af aflamarki úthafskarfa frá einu fiskveiðiári yfir á það næsta. Þá er heimilt að veiða 5% umfram aflamark í úthafskarfa, enda dregst sá umframafli frá við úthlutun aflamarks næsta fiskveiðiárs á eftir.
5. gr.
Aðeins er þeim íslenskum fiskiskipum heimilt að stunda veiðar á samningssvæði NEAFC sem búin eru fjarskiptabúnaði sem sendir upplýsingar með sjálfvirkum hætti til sameiginlegrar eftirlitsstöðvar Landhelgisgæslu Íslands og Fiskistofu, hér eftir nefnd Eftirlitsstöðin, um staðsetningu viðkomandi skips á klukkustundar fresti. Óheimilt er að halda úr höfn til veiða fyrr en starfsmenn Eftirlitsstöðvarinnar hafa staðfest til skipstjóra að ofangreindur búnaður starfi eðlilega.
Ef búnaður til sjálfvirkra sendinga, sbr. 1. mgr., bilar, skal gert við hann við komu í næstu höfn. Þar til búnaðinum verður komið í lag, skal senda á annan hátt upplýsingar um staðsetningu skipsins á 6 klukkustunda fresti til Eftirlitsstöðvarinnar. Einnig skulu tilkynningar skv. 6. gr. innihalda upplýsingar um staðsetningu skipsins.
6. gr.
Við úthafskarfaveiðar innan fiskveiðilandhelgi Íslands, sbr. 2. málslið 1. gr., við úthafskarfaveiðar í fiskveiðilögsögu Grænlands og eftir því sem við á á alþjóðlegu hafsvæði, skal senda eftirgreindar tilkynningar til Eftirlitsstöðvarinnar:
Komutilkynning: Skylt er skipstjóra skips að tilkynna til Eftirlitsstöðvarinnar með ekki meira en 12 klukkustunda og að minnsta kosti 2 klukkustunda fyrirvara að það fari inn á veiðisvæði sem skilgreint er í 1. mgr. 3. gr. tilkynningarinnar komi fram eftirfarandi upplýsingar:
Aflatilkynning: Tilkynna skal Eftirlitsstöðinni daglega um heildarafla. Í tilkynningunni komi fram eftirfarandi upplýsingar:
Lokatilkynning: Þegar veiðiskip yfirgefur svæðið sem skilgreint er í 1. mgr. 3. gr. skal það tilkynnt Eftirlitsstöðinni með ekki meira en 8 klukkustunda og að minnsta kosti 2 klukkustunda fyrirvara.
7. gr.
Tilkynningar skv. 6. gr. skulu sendar með þeim hætti sem lýst er í viðaukum I og II við reglugerð nr. 1221/2008 með síðari breytingum, um veiðieftirlit á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC).
Um tilkynningar við úthafskarfaveiðar á alþjóðlegu hafsvæði gilda að öðru leyti ákvæði reglugerðar nr. 1221/2008 með síðari breytingum, um veiðieftirlit á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC).
8. gr.
Stundi skip úthafskarfaveiðar og almennar togveiðar í lögsögu Íslands í sömu veiðiferð skal halda úthafskarfa aðgreindum frá öðrum afla um borð í veiðiskipi og skal hann veginn og skráður sérstaklega við löndun.
Er afli reiknast til aflamarks skal miðað við 94% nýtingu sé úthafskarfa landað slægðum með haus, 59% nýtingu sé úthafskarfa landað hausskornum, 30% nýtingu sé honum landað flökuðum með roði og beinum, 27% nýtingu sé honum landað flökuðum, roðlausum með beinum.
Þegar úthafskarfi er reiknaður til þorskígilda skal miðað við verðmætastuðulinn 0,82.
9. gr.
Skipstjóri skal, svo fljótt sem verða má eftir að veiðum lýkur og eigi síðar en 4 klukkustundum eftir að komið er til hafnar, senda Fiskistofu skýrslu um áætlaðan úthafskarfaafla í viðkomandi veiðiferð á því formi sem Fiskistofa ákveður. Í skýrslunni skal koma fram úthafskarfaafli skipsins miðað við afla upp úr sjó sundurliðaður eftir afla innan fiskveiðilandhelgi Íslands, afla á alþjóðlegu hafsvæði og afla innan fiskveiðilandhelgi Grænlands.
10. gr.
Brot á reglugerð þessari og ákvæðum leyfisbréfa gefnum út á grundvelli hennar, skulu varða viðurlögum samkvæmt lögum nr. 151, 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, með síðari breytingum, lögum nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, lögum nr. 57, 3. júní 1996, um umgengni um nytjastofna sjávar með síðari breytingum og lögum nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum.
11. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum nr. 151, 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, með síðari breytingum, lögum nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, lögum nr. 57, 3. júní 1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, með síðari breytingum og lögum nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 28. desember 2011.
F. h. r.
Jóhann Guðmundsson.
Kristján Freyr Helgason.