Prentað þann 1. apríl 2025
182/2012
Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 973/2011 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 21/2004 um að koma á kerfi fyrir auðkenningu og skráningu sauðfjár og geita.
1. gr.
Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla, I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 61/2011 frá 2. júlí 2011 öðlast eftirfarandi ESB-gerð gildi hér á landi:
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 506/2010 frá 14. júní 2010 um breytingu á viðaukanum við reglugerð ráðsins (EB) nr. 21/2004 að því varðar sauðfé og geitur sem haldin eru í dýragörðum.
2. gr.
Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 506/2010 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 55 frá 7. október 2011, bls. 220.
3. gr.
Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 93/1995 um matvæli.
4. gr.
Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.
5. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli og 17. gr. laga nr. 103/2002 um búfjárhald o.fl.
6. gr.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 13. febrúar 2012.
F. h. r.
Sigurgeir Þorgeirsson.
Indriði B. Ármannsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.