1. gr.
Reglugerð þessi tekur til flotvörpuveiða íslenskra skipa vestan 22. gráðu vestlægrar lengdar úr úthafskarfastofnum á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC), utan þeirra svæða sem falla undir fiskveiðilögsögu samningsaðila og innan fiskveiðilandhelgi Grænlands, í samræmi við samning þjóðanna þess efnis. Ennfremur til úthafskarfaveiða fiskiskipa, sem leyfi hafa til veiða í fiskveiðilandhelgi Íslands, er þau stunda veiðar á úthafskarfa með flotvörpu utan línu, sem dregin er milli eftirgreindra punkta:
Þá tekur reglugerðin til veiða á úthafskarfa sem veiddur er á svæðum 1f, 2g, 2h, 2j og 3k á samningssvæði Norðvestur-Atlantshafs fiskveiðistofnunarinnar, NAFO og reiknast aflinn til aflamarks viðkomandi skips sbr. 2. mgr. 3. gr. Um þær veiðar gilda ákvæði reglugerðar um veiðar á samningssvæði Norðvestur-Atlantshafs fiskveiðistofnunarinnar, NAFO. Fiskistofu er heimilt að stöðva veiðar íslenskra skipa á ofangreindum svæðum þegar heildarafli skipa frá aðildarríkjum NEAFC nær 9.627 lestum.
2. gr.
Íslenskum fiskiskipum er óheimilt að stunda flotvörpuveiðar á úthafskarfa skv. 1. gr. án sérstaks leyfis Fiskistofu.
Aðeins er þeim íslenskum fiskiskipum heimilt að stunda veiðar á úthafskarfa í flotvörpu, sem hafa aflamark í úthafskarfa, sbr. 3. og 4. gr.
3. gr.
Á árinu 2009 er þeim íslensku fiskiskipum, sem leyfi fá til veiða á úthafskarfa með flotvörpu, sbr. 2. gr., heimilt að veiða alls 21.083 lestir af úthafskarfa. Af þessu magni er leyfilegt að veiða 70% eða alls 14.758 lestir innan svæðis sem markast af eftirfarandi punktum:
Af þessum 14.758 lestum er þó einungis heimilt að veiða 3.162 lestir af úthafskarfa á tímabilinu frá 1. apríl til 10. maí 2009 en þann 11. maí 2009 hækkar þessi heimild um 11.596 lestir.
Þá er þeim íslensku fiskiskipum sem leyfi fá til veiða á úthafskarfa með flotvörpu á árinu 2009, sbr. 2. gr. heimilt frá 1. apríl 2009 að veiða alls 6.325 lestir af úthafskarfa utan svæðis sem um getur í 1. mgr. þessarar greinar og utan lögsögu Íslands.
Stundi skip veiðar með flotvörpu á svæðum, sem skilgreind eru í 1. og 3. mgr. þessarar greinar, reiknast allur karfaafli skipsins til aflamarks skipsins í úthafskarfa samkvæmt reglugerð þessari.
Á grundvelli aflahludeildar í úthafskarfa skal Fiskistofa úthluta hverju skipi aflamarki, eins og skilgreint er í 1. - 3. mgr. þessarar greinar.
Heimilt er skipum að veiða allt aflamark sitt í úthafskarfa utan þess svæðis sem skilgreint er í 1. mgr. þessarar greinar.
4. gr.
Heimilt er að framselja aflahlutdeild og aflamark milli íslenskra fiskiskipa, samkvæmt þeim reglum, sem almennt gilda um framsal aflahlutdeildar og aflamarks samkvæmt laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.
Ákvæði 11. gr. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða með síðari breytingum, gilda ekki um aflamark sem úthlutað er í úthafskarfa samkvæmt þessari reglugerð. Þó er heimilt að flytja allt að 5% af aflamarki úthafskarfa frá einu fiskveiðiári yfir á það næsta. Þá er heimilt að veiða 5% umfram aflamark í úthafskarfa, enda dregst sá umframafli frá við úthlutun aflamarks næsta fiskveiðiárs á eftir.
5. gr.
Aðeins er þeim íslenskum fiskiskipum heimilt að stunda veiðar á samningssvæði NEAFC sem búin eru fjarskiptabúnaði sem sendir upplýsingar með sjálfvirkum hætti til sameiginlegrar eftirlitsstöðvar Landhelgisgæslu Íslands og Fiskistofu, hér eftir nefnd eftirlitsstöðin, um staðsetningu viðkomandi skips á klukkustundar fresti. Óheimilt er að halda úr höfn til veiða fyrr en starfsmenn eftirlitsstöðvarinnar hafa staðfest til skipstjóra að ofangreindur búnaður starfi eðlilega.
Ef búnaður til sjálfvirkra sendinga, sbr. 1. mgr., bilar, skal gert við hann við komu í næstu höfn. Þar til búnaðinum verður komið í lag, skal senda á annan hátt upplýsingar um staðsetningu skipsins á 6 klukkustunda fresti til eftirlitsstöðvarinnar. Einnig skulu tilkynningar skv. 6. gr. innihalda upplýsingar um staðsetningu skipsins.
6. gr.
Við úthafskarfaveiðar innan fiskveiðilandhelgi Íslands, sbr. 2. málslið 1. gr., við úthafskarfaveiðar í fiskveiðilögsögu Grænlands og eftir því sem við á á alþjóðlegu hafsvæði, skal senda eftirgreindar tilkynningar til eftirlitsstöðvarinnar:
Komutilkynning: Skylt er skipstjóra skips að tilkynna til eftirlitsstöðvarinnar með ekki meira en 12 klukkustunda og að minnsta kosti 2 klukkustunda fyrirvara að það fari inn á veiðisvæði sem skilgreint er í 1. mgr. 3. gr. eða veiðisvæði sem skilgreint er í 2. mgr. 3. gr. Í tilkynningunni komi fram eftirfarandi upplýsingar:
Aflatilkynning: Stundi skip veiðar innan svæðis samkvæmt 1. mgr. 3. gr. skal tilkynna eftirlitsstöðinni daglega um heildarafla. Stundi skip veiðar utan svæðis samkvæmt 2. mgr. 3. gr. þá skal hvern mánudag tilkynna eftirlitsstöðinni um heildarafla síðustu viku, þ.e. frá upphafi síðasta mánudags, til loka síðasta sunnudags, miðað við afla upp úr sjó, sundurgreindan eftir tegundum. Hafi skip verið skemur en viku á veiðisvæðinu skal gefa upp afla frá því skipið hóf veiðar á svæðinu. Ennfremur skal senda aflatilkynningu áður en farið er milli svæða sbr. 1. og 2. mgr. 3. gr. Í tilkynningunni komi fram eftirfarandi upplýsingar:
Lokatilkynning: Þegar veiðiskip yfirgefur svæðið sem skilgreint er í 1. mgr. 3. gr. eða svæði sem skilgreint er í 2 mgr. 3 gr. skal það tilkynnt eftirlitsstöðinni með ekki meiri en 8 klukkustunda og að minnsta kosti 2 klukkustunda fyrirvara.
7. gr.
Tilkynningar skv. 6. gr. skulu sendar með þeim hætti er lýst er í viðaukum I og II við reglugerð nr. 1221/2008, um veiðieftirlit á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC).
Um tilkynningar við úthafskarfaveiðar á alþjóðlegu hafsvæði gilda að öðru leyti ákvæði reglugerðar nr. 1221/2008, um veiðieftirlit á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC).
8. gr.
Stundi skip úthafskarfaveiðar og almennar togveiðar í lögsögu Íslands í sömu veiðiferð skal halda úthafskarfa aðgreindum frá öðrum afla um borð í veiðiskipi og skal hann veginn og skráður sérstaklega við löndun.
Skylt er að halda aðgreindum úthafskarfa sem veiðist innan svæðis sem skilgreint er í 1. mgr. 3. gr. og úthafskarfa sem veiðist utan svæðis sem skilgreint er í 2. mgr. 3. gr. og skal hann veginn og skráður sérstaklega við löndun. Sé úthafskarfa sem veiðist innan svæðis sem skilgreint er í 1. mgr. 3. gr. og úthafskarfa sem veiðist utan svæðis sem skilgreint er í 2. mgr. 3. gr. ekki haldið aðgreindum sbr. 1. málslið þessarar málsgreinar skal aflinn reiknaður til aflamarks í úthafskarfa sem veiðist innan svæðis sem skilgreint er í 1. mgr. 3. gr.
Er afli reiknast til aflamarks skal miðað við 94% nýtingu sé úthafskarfa landað slægðum með haus, 59% nýtingu sé úthafskarfa landað hausskornum, 30% nýtingu sé honum landað flökuðum með roði og beinum, 27% nýtingu sé honum landað flökuðum, roðlausum með beinum.
Þegar úthafskarfi er reiknaður til þorskígilda skal miðað við verðmætastuðulinn 0,41.
9. gr.
Skipstjóri skal, svo fljótt sem verða má eftir að veiðum lýkur og eigi síðar en 4 klukkustundum eftir að komið er til hafnar, senda Fiskistofu skýrslu um áætlaðan úthafskarfaafla í viðkomandi veiðiferð á því formi sem Fiskistofa ákveður. Í skýrslunni skal koma fram úthafskarfaafli skipsins miðað við afla upp úr sjó sundurliðaður eftir afla innan fiskveiðilandhelgi Íslands, afla á alþjóðlegu hafsvæði og afla innan fiskveiðilandhelgi Grænlands. Einnig skal koma fram hve mikill hluti aflans er fenginn á hvoru svæðinu skv. 1. og 2. mgr. 3. gr.
10. gr.
Brot á reglugerð þessari og ákvæðum leyfisbréfa gefnum út á grundvelli hennar, skulu varða viðurlögum samkvæmt lögum nr. 151, 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, með síðari breytingum, lögum nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, lögum nr. 57, 3. júní 1996, um umgengni um nytjastofna sjávar með síðari breytingum og lögum nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum.
11. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum nr. 151, 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, með síðari breytingum, lögum nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, lögum nr. 57, 3. júní 1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, með síðari breytingum og lögum nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 27. mars 2009.
F. h. r.
Steinar Ingi Matthíasson.
Kristján Freyr Helgason.