Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

5/2009

Reglugerð um beingreiðslur í garðyrkju árið 2009. - Brottfallin

I. KAFLI

Heildarfjárhæð beingreiðslna, framkvæmd og skipting milli afurða.

1. gr.

Heildarfjárhæð og framkvæmd beingreiðslna.

Árið 2009 skal greiða beingreiðslur að fjárhæð 223,1 milljónir kr. úr ríkissjóði til fram­leiðenda á gúrkum, tómötum og papriku eftir nánari ákvæðum í þessari reglugerð. Fjárhæðin skiptist upp eftir áðurnefndum tegundum og greiðist til framleiðenda miðað við selt magn af þessum afurðum.

Bændasamtök Íslands hafa umsjón með og annast framkvæmd beingreiðslna á árinu 2009.

2. gr.

Skipting beingreiðslna milli afurða.

Heildarfjárhæð beingreiðslna skiptist á afurðir sem hér segir:

a)

Tómatar (að meðtöldum kirsuberja-, plómu-, kjöt- og klasatómötum) alls 109,0 milljónir kr.

b)

Gúrkur alls 81,2 milljónir kr.

c)

Paprika alls 32,9 milljónir kr.



Ef í ljós kemur að framleiðsluáætlanir gefa til kynna umtalsverða breytingu á framleiðslu­magni milli tegunda er heimilt að endurskoða ofangreinda skiptingu.

3. gr.

Útreikningur beingreiðslna á afurðaeiningar.

Heildarfjárhæð beingreiðslna sem er til ráðstöfunar fyrir hverja afurð skv. 2. gr. skal deilt á selt magn innan ársins, frá og með 1. janúar 2009 að telja. Flokka skal gúrkur, tómata og papriku eftir flokkunarreglum Sambands garðyrkjubænda um gæðaflokkun þessara afurða og skulu beingreiðslur einungis greiddar út á selt magn afurða sem fara í fyrsta flokk.

Framkvæmdanefnd búvörusamninga gerir áætlun að fengnum upplýsingum frá Bænda­samtökum Íslands um sölumagn þessara afurða yfir árið. Áætla skal beingreiðslur pr. kg miðað við áætlað sölumagn og greiða 80% af áætluðum beingreiðslum pr. kg sem fyrstu greiðslu eftir sölu hvers mánaðar.

Við lokauppgjör skv. 12. gr. skal finna út beingreiðslur á hvert kg afurðar miðað við heildarfjárhæð beingreiðslna skv. 2. gr. með því að deila þeim á það magn, sem staðfest er að selt hafi verið á árinu og skulu þær greiddar framleiðendum að frádregnum þeim greiðslum sem fram hafa farið. Ef upp kemur ágreiningur um rétt til beingreiðslna skulu þeir fjármunir sem um er deilt ekki koma til greiðslu við lokauppgjör fyrr en leyst hefur verið úr ágreiningnum.

4. gr.

Endurskoðun á einingaverði beingreiðslna.

Bændasamtök Íslands skulu tvisvar á árinu 2009, fyrir 1. júlí og fyrir 1. október endurskoða spár um framleiðslumagn ársins og á grundvelli þess gera tillögur til framkvæmdanefndar búvörusamninga um breytingar á fyrirframgreiðslu á selda einingu, sbr. 3. gr. Ef til lækkunar kemur á beingreiðslum á einingu afurðar til hvers handhafa skulu þær endurreiknaðar frá upphafi árs í samræmi við breytingar á einingaverðum á þann hátt að til útborgunar á árinu komi að hámarki 88% af áætluðum beingreiðslum á einingu við endurskoðun 1. júlí. Við endurskoðun 1. október skal breyta fyrirfram­greiðslum í 93% af áætluðum beingreiðslum á einingu. Bændasamtök Íslands tilkynna handhöfum beingreiðslna þessar ákvarðanir hverju sinni.

II. KAFLI

Réttur til beingreiðslna, umsóknir, gjalddagar, ofgreiddar beingreiðslur o.fl.

5. gr.

Réttur til beingreiðslna.

Réttur til beingreiðslna árið 2009 er bundinn því skilyrði að framleiddar séu gúrkur, tómatar eða paprika á hlutaðeigandi garðyrkjubýli. Þessi réttur er bundinn við framleiðslu­stað en ekki framleiðanda. Með garðyrkjubýli er hér átt við lögaðila eða býli með virðisaukaskattskylda veltu, sem framleiðir grænmeti (útirækt/ylrækt), skrautjurtir, garðplöntur eða tré og runna.

Framleiðendur, sem tóku við beingreiðslum á árinu 2007 þurfa ekki að sækja sérstaklega um beingreiðslur fyrir árið 2009, en þeir skulu skila áætlun til Bændasamtaka Íslands fyrir 15. janúar 2009, þar sem fram kemur flatarmál gróðurhúsa, sem ætlað er til fram­leiðslu fyrir hverja tegund svo og áætluð framleiðsla af hverri tegund á árinu 2009. Feli áætlun í sér meira en 10% frávik frá framleiðslu síðasta árs skal gera sérstaka grein fyrir henni. Einnig skal liggja fyrir fullnaðaruppgjör vegna ársins 2007 áður en bein­greiðslur fást greiddar vegna ársins 2009.

6. gr.

Umsóknir.

Þeir aðilar sem ekki tóku við beingreiðslum á árinu 2007 en vilja öðlast rétt til þeirra að uppfylltum skilyrðum, sbr. 5. gr., skulu senda umsókn til Bændasamtaka Íslands fyrir 15. janúar 2009. Þá skulu umsækjendur skila áætlunum skv. 5. gr.

Ef fullnægjandi gögnum skv. 1. mgr. er ekki skilað á réttum tíma verða beingreiðslur ekki greiddar fyrr en framleiðendur hafa gert úrbætur.

7. gr.

Handhafar beingreiðslna.

Handhafi beingreiðslna er ábúandi lögbýlis eða einstaklingur/lögaðili sem stendur að rekstri garðyrkjubýlis. Á hverju garðyrkjubýli skal einungis vera einn handhafi bein­greiðslna. Þó er heimilt þegar um fleiri sjálfstæða rekstraraðila er að ræða að skrá þá sérstaklega. Sjálfstæður rekstraraðili telst sá einn sem hefur sjálfstætt virðisauka­skatts­uppgjör.

Tilkynna skal Bændasamtökum Íslands án tafar um breytingar á handhöfum bein­greiðslna.

Réttur til beingreiðslna er bundinn við handhafa. Honum er óheimilt að framvísa þeim bein­greiðslum sem honum ber til annars aðila.

Bændasamtök Íslands halda skrá yfir handhafa beingreiðslna.

8. gr.

Gjalddagar beingreiðslna.

Fyrsti gjalddagi er 1. apríl 2009 og síðan 1. hvers mánaðar vegna sölu næstsíðasta mánaðar að því tilskildu að gögnum vegna sölu sé skilað á réttum tíma, sbr. 11. gr. Berist gögn síðar frestast afgreiðsla beingreiðslna til næsta gjalddaga.

9. gr.

Ofgreiddar beingreiðslur.

Framleiðendur sem hafa tekið við beingreiðslum á grundvelli vísvitandi rangrar upplýsinga­gjafar skulu endurgreiða ofteknar beingreiðslur með 50% álagi. Ef til þess kemur að úrskurða þurfi um rétt til beingreiðslna skulu Bændasamtök Íslands halda eftir af beingreiðslum til framleiðandans þeirri fjárhæð sem ágreiningur er um að viðbættu 50% álagi.

10. gr.

Viðskipti sem réttur til beingreiðslna takmarkast við.

Sala afurða veitir aðeins rétt til beingreiðslna sé kaupandi bókhaldsskyldur hvort sem um er að ræða kaup til eigin rekstrar eða til endursölu. Sömu reglur gilda um umboðssölu. Framleiðandi getur einungis öðlast rétt til beingreiðslna með sölu eigin framleiðsluafurða en ekki með sölu á afurðum sem hann hefur keypt af öðrum. Réttur framleiðanda til beingreiðslna fellur niður annist hann kaup á gúrkum, tómötum eða papriku til eigin rekstrar, endursölu eða umboðssölu.

III. KAFLI

Upplýsingar og gögn um sölu afurða o.fl.

11. gr.

Upplýsingar og gögn sem skila ber mánaðarlega.

Handhafar beingreiðslna skulu senda Bændasamtökum Íslands mánaðarlega eftirfarandi upplýsingar og gögn eigi síðar en 12. næsta mánaðar eftir að sala fer fram:

  1. Nafn, heimilisfang og kennitölu handhafa beingreiðslna ásamt virðisaukaskatts­númeri og landnúmeri garðyrkjubýlis.
  2. Nafn, heimilisfang og kennitölu kaupanda ásamt virðisaukaskattsnúmeri.
  3. Afreikninga eða sölunótur sem bera með sér tegund afurðar, selt magn í kg, skiptingu magns eftir gæðaflokkum, verð á kg fyrir hverja afurðaeiningu og verðmæti alls. Séu þessar upplýsingar sendar á rafrænu formi er ekki skylt að afreikningar eða sölunótur fylgi, aðeins að þessi gögn séu til staðar og aðgengileg sé eftir þeim leitað og að viðeigandi fylgiskjalsnúmer sé skráð og komi fram.

Þau gögn sem þannig eru frágengin skulu staðfest með undirritun eða á annan full­nægjandi hátt, af eða fyrir hönd viðkomandi handhafa beingreiðslna eftir umboði. Bændasamtök Íslands geta hvenær sem er óskað eftir aðgangi að frumgögnum til staðfestingar. Handhafa beingreiðslna er skylt að halda eftir afriti af gögnum sendum Bændasamtökum Íslands til að vinna lokauppgjör ársins eftir, sbr. 4. mgr. 3. gr. og 12. gr.

12. gr.

Staðfesting lokauppgjörs fyrir árið.

Bændasamtök Íslands skulu fyrir 1. mars 2010 ljúka uppgjöri fyrir árið 2009. Hver framleiðandi, sem hlotið hefur beingreiðslur á árinu skal senda Bændasamtökum Íslands fyrir 10. febrúar 2010 heildaruppgjör fyrir árið staðfest af löggiltum endurskoðanda. Uppgjörið skal sýna selt magn af gúrkum, tómötum og/eða papriku eftir tegundum, afbrigðum og gæðaflokkum. Komi fram misræmi frá áður innsendum gögnum (afreikn­ingum og sölunótum) skal leggja fram afrit af þeim bókhaldsgögnum sem standa þar að baki og gerð grein fyrir leiðréttingum. Við lokauppgjör reikna Bændasamtök Íslands út og gera upp beingreiðslur á kg af gúrkum, tómötum og papriku, eftir seldu magni á árinu 2009. Þessir útreikningar skulu hljóta staðfestingu framkvæmdanefndar búvörusamninga áður en lokauppgjör fer fram.

Við lokauppgjör skal halda eftir fjárhæðum er svara til krafna vegna ágreinings sem vísað hefur verið til úrskurðar skv. 13. gr.

IV. KAFLI

Málskot.

13. gr.

Málskot.

Ágreiningi um rétt til beingreiðslna er heimilt að skjóta til úrskurðar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

14. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 99/1993 um framleiðslu, verð­lagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum og öðlast gildi við birtingu.

Reglugerð nr. 12/2008 um beingreiðslur í garðyrkju árið 2008 fellur úr gildi 1. mars 2009.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 8. janúar 2009.

F. h. r.
Ólafur Friðriksson.

Arnór Snæbjörnsson.

Reglugerð sem fellur brott:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica