Reglugerð um breytingu á reglugerð um gjöld fyrir skoðun, skráningu, mælingu skipa o.fl., nr. 546/1993.
Við 10. gr. bætast tvær nýjar málsgreinar er verða 2. og 3. málsgrein svohljóðandi:
Siglingamálastofnun ríkisins framkvæmir skoðun á fjarskiptabúnaði smábáta a.m.k. einu sinni á hverju almanaksári. Til smábáta teljast opnir vélbátar 6 metrar og lengri og fiskiskip með þilfari allt að 15 metrar að lengd, enda hafi þessi skip eingöngu VHF talstöðvar, en ekki millibylgju og/eða stuttbylgjustöðvar um borð og sigla á hafsvæði A1, sbr. 3. gr. rg. nr. 295/1994 um fjarskiptabúnað og fjarskipti íslenskra skipa.
Gjöld fyrir skoðun skv. 2. mgr. hjá bátum með VHF rásir eingöngu skulu vera á ári kr. 2.000.
Reglugerð þessi sem sett er samkvæmt 28. gr. laga um eftirlit með skipum nr. 35/1993 með síðari breytingum, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.
Samgönguráðuneytið, 12. desember 1994.
Halldór Blöndal.
Ragnhildur Hjaltadóttir.