1. gr.
Nýr liður, 4.2.3., bætist inn í 4. gr. Skipulagning, lágmarkskröfur o. fl. sem orðist svo:
4.2.3. Þegar fallhlífarstökk er sýnt á útisamkomum má minnka radíusinn niður í 50 m og öryggissvæði mega vera aðliggjandi svæði. Þetta má þó aðeins leyfa að því tilskyldu, að stökkvararnir uppfylli kröfur fyrir C- skírteini, samkvæmt reglum F.A.I., hafi stýranlega varafallhlíf og þegar vindur yfir jörðu er ekki meiri en 6 m á sekúndu (12 hnútar).
2. gr.
Liður 4.2.3. í 4. gr. Skipulagning, lágmarkskröfur o. fl. verði 4.2.4.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt 188. gr. laga um loftferðir nr. 34 21, maí 1964 til að öðlast gildi þegar í stað, og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.
Samgönguráðuneytið, 12. ágúst 1982.
Steingrímur Hermannsson.
Birgir Guðjónsson.