HAFNARREGLUGERÐ
fyrir Vopnafjarðarkauptún.
I. KAFLI
TAKMÖRK HAFNARINNAR
1. gr.
Vopnafjarðarhöfn, innri höfnin, takmarkast af línu, sem hugsast dregin frá suðurenda Leiðarhafnarhólma í brúna á Hofsá.
Ytri takmörk hafnarinnar eru fyrir innan linu, sem hugsast dregin úr suðurenda Leiðarhafnarhólma í stefnu utan til við Drangsnes.
Gjöld af skipum, sem, til hafnarinnar leita, skal aðeins miða við innra hafnarsvæðið, en takmörk ytri hafnar eru sett aðeins með tilliti til friðunar fyrir skotum, fugla- og seladrápi og öðrum ágangi.
II. KAFLI
STJÓRN HAFNARINNAR OG REKSTUR
2. gr.
Sveitarstjórn hefur á hendi stjórn og rekstur hafnarinnar undir yfirumsjón þess ráðuneytis, sem fer með hafnamál.
Framkvæmd hafnarmála og eftirlit með höfninni skal fela hafnarnefnd. Sveitarstjórn kýs á fyrsta fundi sínum 5 manna hafnarstjórn og jafnmarga til vara og skipar formann hennar og varaformann, sem boðar til funda í hafnarstjórn og stýrir þeim.
Kjörtímabil hafnarnefndar er hið sama og sveitarstjórnar.
Hafnarvörður, eða sá sem sér um daglegan rekstur og eftirlit hafnarinnar, á sæti á fundum hafnarnefndar og hefur þar málfrelsi og tillögurétt.
Skrifstofa hreppsins sér um skrifstofuhald, fjármál og reikningsskil hafnarinnar.
3. gr.
Sveitarstjórn skipar hafnarvörð eða umsjónarmann, og aðra fasta starfsmenn eftir tillögum hafnarnefndar og setur þeim erindisbréf, þar sem m. a. verksvið þeirra er ákveðið.
Daglegan rekstur, framkvæmdir, eftirlit og umsjón annast hafnarvörður í samráði við hafnarstjórn og sveitarstjóra.
III. KAFLI
UM ALMENNA REGLU Á HÖFNINNI OG HAFNARSVÆÐINU
4. gr.
Skip telst í reglugerð þessari hvert fljótandi far.
5. gr.
Sérhver skipstjóri, sem á skipi sínu kemur á höfnina, að bryggju eða að hafnarbakka, skal gæta fyllsta öryggis í allri umferð á höfninni. Hann skal vera kunnugur ákvæðum reglugerðar hafnarinnar, svo og skipshöfn hans öll.
6. gr.
Hafnarvörður sér um að gætt sé reglu á höfninni og á landi hennar. Er öllum skylt að hlýða boði hans og banni svo og þeirra manna, er settir eru til að gæta reglu. Þyki einhverjum sér óréttur ger af starfsmönnum hafnarinnar getur hann kært fyrir hafnarstjórn, en skipun starfsmannsins her að hlýða þegar í stað.
Starfsmenn hafnarinnar skulu gæta allrar kurteisi í starfi sínu.
7. gr.
Þeim, sem ekkert lögmætt erindi eiga, er óheimilt að dvelja á landi hafnarinnar, tálmi þeir með því fermingu eða affermingu eða önnur störf, sem þar eru unnin. Banna má ónauðsynlegan akstur hvers kyns ökutæk,ja um bryggjur og hafnarbakka.
8. gr.
Skylt er að gæta ýtrustu varúðar í meðferð opins elds og óbyrgðra ljósa í skipum á höfninni, sem flytja eldfim efni og efni, sem sprengihætta stafar af. Hið sama gildir um tóbaksreykingar og ber, ef þurfa þykir, að banna þær á þeim stöðum þar sem um eldhættu eða sprengihættu gæti verið að ræða (sjá 22. gr.).
9. gr.
Ekki má kasta í höfnina, hvorki frá skipum né frá hafnarbakka eða bryggjum, kjölfestu, ösku, dauðum fiski, fiskúrgangi, veiðarfærum, trossum, vírum, matarleifum, umbúðum eða neins konar rusli. Allt þess háttar skal flutt á þann stað, sem hafnarvörður vísar til.
Ekki má láta olíur eða vatn mengað olíu renna í höfnina. Þegar olía er látin í skip eða losuð úr því, skal þess gætt, að ekkert af henni renni í höfnina, á hafnarmannvirki eða á þilfar skipsins.
IV. KAFLI
UM LEGU SKIPA í HÖFNINNI OG AFGREIÐSLU ÞEIRRA
10. gr.
Þegar skip leitar hafnar, skal skipstjóri eða umboðsmaður skipsins tafarlaust snúa sér til hafnarvarðar, er vísar honum á legustað fyrir skipið.
Leggist skipið við hafnarmannvirki, skulu landfestar bundnar, þar sem starfsmenn hafnarinnar segja til um.
11. gr.
Ef sjúkdómur er á skipinu eða ástæða þykir til að ætla að sótthætta geti stafað af því, ber hafnarverði að sjá um að fylgt sé þeim reglum, sem settar eru í lögum um varnir gegn því að næmir sjúkdómar berist til Íslands.
12. gr.
Skip, sem ekki er verið að ferma eða afferma, eða ekki er unnið við, mega aldrei liggja þannig á höfninni að þan tálmi vinna við önnur skip, og skal skylt að hlýða boðum starfsmanna hafnarinnar um það, hvort þau skuli flutt. Ef ekki er orðið við boðum starfsmanna hafnarinnar í þessum efnum, er heimilt að færa skipið á kostnað eiganda.
Brottfarartíma skips skal skipstjóri tilkynna hafnaryfirvöldum með minnst tveggja tíma fyrirvara.
13. gr.
Sé nauðsynlegt talið að skipum, sem fermd eru eða affermd, sé lagt hverju við hliðina á öðru, er heimilt að flytja farm þeirra skipa, er utar liggja yfir þilfar hinna. Skipshöfn og farþegum þeirra skipa, sem utar liggja, er einnig heimil nauðsynleg umferð um þilför þeirra skipa, er nær liggja.
14. gr.
Í sérhverju skipi, sem ekki hefur leyfi hafnarvarðar til að liggja mannlaust á höfninni, skal jafnan vera a. m. k. einn maður, er getur tekið við fyrirskipunum frá starfsmönnum hafnarinnar og framkvæmt þ:er í samræmi við það, sem reglugerð þessi býður.
15. gr.
Eigi má festa skipum við hafnarbakka eða bryggjur nema við festarhringa eða festarstólpa, að tilvísun hafnarvarðar. Séu landfestar úr járni, skulu þær vera klæddar þar sem þær hvíla á hafnarbakkanum eða bryggjunni. Festum skal þannig komið fyrir, að þær hindri sem minnst umferð á bryggju eða hafnarbakka, og skulu festar auðkenndar með veifum eða öðrum varúðarmerkjum. Þyki hafnarverði þess ekki nægilega gætt, getur kann krafizt þess að hætt sé úr því tafarlaust.
Skylt er að hafa hlífar milli skips og hafnarbakka eða bryggju óski hafnarvörður þess.
16. gr.
Skip mega ekki láta vélarnar gangs af svo miklu afli, að öðrum skipum eða hafnarmannvirkjum stafi af því hætta.
17. gr.
Ekki má krækja hökum í bryggjur eða hafnarbakka. Ekki mega skip hleypa vatni á bryggju eða hafnarbakka, hvorki við þvott á þilfari né heldur, er þau hleypa burt vatni á annan hátt. Búa skal svo um, með hlífum að vatnið fari beint í höfnina.
18. gr.
Ef skip lendir á grynningum og sekkur, þar sem það að áliti hafnarnefndar tálmar greiðri notkun hafnarinnar eða umferð um hafnarsvæðið, skal fjarlægja það svo fljótt, sem við verður komið. Verði dráttur á því, má hafnarvörður láta færa skipið burt á kostnað eiganda, og er honum, ef nauðsyn krefur, heimilt að láta selja skipið til lúkningar kostnaðinum.
19. gr.
Áður en kjölfesta er flutt á skip eða úr skipi, skal hafnarverði gert viðvart og ákveður hann þá hvar losun eða lestun kjölfestunnar fer fram.
Við losun eða lestun á kjölfestu, sandi, kolum og öðru þess háttar, er skylt að hafa nægilega tryggar hlífar á milli skipsins og hafnarbakka, bryggjunnar eða bátanna, að ekkert falli fyrir borð. Sé þess eigi gætt, getur hafnarvörður stöðvað verkið, unz umbætur hafa farið fram.
Skipstjóri skal sjá um, að kjölfesta sú, sem flutt hefur verið á land úr skipi hans, sé þegar í stað flutt burt af löndunarstaðnum þangað, sem hafnarvörður vísar til.
20. gr.
Þegar lokið er fermingu eða affermingu skal eigandi skips láta hreinsa bryggju þá eða hafnarbakka, sem notuð hafa verið, sé þess talin þörf. Farist það fyrir, skal hafnarvörður sjá um að það sé gert, en eigandi skips greiði þann kostnað, er af því leiðir.
V. KAFLI
UM SKIP, SEM LAGT ER Í LÆGI
21. gr.
Skipum má leggja í 1ægí á höfninni með sérstöku leyfi hafnarnefndar, sé það gert undir umsjón hafnarvarðar, sem ákveður legustaðinn, legufærin og fyrirkomulag allt, er varðar lagningu skipsins.
22. gr.
Meðan skip liggur mannlaust í lægi á höfninni, skal ekki sjaldnar en á eins mánaðar fresti fara út í það til að lita eftir hvort legufæri eða annað hefur farið úr lagi eða bilað. Ef svo reynist, skal lagfæra það svo fljótt, sem auðið er.
Leyfi hafnarnefndar til að leggja skipi í lægi, er bundið því skilyrði, að ef skipið sekkur láti eigandi þess taka það upp eða sprengja það sundur, svo það skemmi ekki höfnina. Sé því ekki fullnægt innan tiltekins frests, getur hafnarnefnd látið framkvæma verkið á kostnað eiganda.
23. gr.
Heimilt er að leggja skipi í lægi á höfninni, þó það sé mannlaust, sé það svo þétt; að áliti hafnarnefndar, sem getur framkvæmt eða látið framkvæma á því rannsókn á kostnað eiganda, að ekki stafi af því nein hætta.
Á skipum þessum skal tendrað ljós samkvæmt reglum þeim, sem settar eru í alþjóðasjóferðareglum um skip, er liggja fyrir akkeri.
Áður en skipstjóri fer af skipinu, skal hann skriflega tilkynna hafnarverði um umsjónarmann búsettan í því lögsagnarumdæmi, sem, höfnin er í, sem skal hafa umsjón skipsins á hendi og skal skipstjóri ganga úr skugga um, að hafnart~örður sé samþykktir útnefningu umsjónarmannsins. Hafnarnefnd getur krafizt, ef henni finnst ástæða til, að umsjónarmaður hafi skipstjórnarréttindi og hafi búsetu það nálægt hafnarsvæðinu að auðvelt sé að ná til hans í tæka tíð, er færa þarf skipið eða til annarra þeirra aðgerða, er skipið snertir.
Hafnarvörður beinir til umsjónarmanns öllum þeim fyrirskipunum er skipið varða, en umsjónarmaður annað hvort framkvæmir fyrirskipanir hafnarvarðar, eða sér um að þær séu framkvæmdar. Verði dráttur á því, skal hafnarvörður láta framkvæma verkið á kostnað skipseiganda.
VI. KAFLI
UM FERMINGU OG AFFERMINGU ELDFIMRA VÖKVA OG SPRENGIEFNA
24. gr.
Skip, sem flytja eldfim, efni svo sem steinolíu, benzín, aceton, terpentínu eða aðra álíka eldfima vökva, sprengiefni, svo sem púður, dýnamit, geomit eða þess konar efni, mega ekki fara inn á höfnina fyrr en tilkynnt hefur verið um farm til hafnarvarðar, og afferming leyfð undir eftirliti brunavarðar, ef til þess þykir ástæða. Um útskipun á sams konar farmi gilda sömu varúðarreglur.
25. gr.
Skip, sem hafa meðferðis þau efni, sem, nefnd eru í næstu grein hér á undan, skulu, er þau koma inn á höfnina með þess konar farm, hafa á framsiglutoppi alþjóðlegt merkjaflagg með bókstafnum ,;B", að degi til en að næturlagi rautt ljós í stað þess.
Merkið skal hafa uppi svo lengi sem skipið er í höfn og um hættu getur verið áð ræða. Skip, sem ekki hafa framsiglu, skulu þess í stað reisa a. m. k. þriggja metra háa stöng, sem flagginu eða ljósinu skal komið fyrir á.
VII. KAFLI
UM GJÖLD TIL HAFNARINNAR
26. gr.
Öll skip skulu greiða hafnargjöld til hafnarsjóðs, er þau koma inn fyrir takmörk hafnarinnar.
Öll gjöld til hafnarinnar greiðast af brúttóstærð skipanna eins og hún er mest, meðan skipið hefur viðdvöl í höfninni. Undanþegin lestagjaldi og bryggjugjaldi eru herskip, skemmtiferðaskip, íslenzk vitaskip og varðskip.
27. gr.
a. Öll farmskip, önnur en strandferðaskip, og öll fiskiskip, stærri en eða jafnt og 400 brúttórúmlestir skulu greiða lestagjald, kr. 3.00 á brúttórúmlest.
b. Strandferðaskip greiði kr. 1.50 á brúttórúmlest.
c. Fiskiskip undir 400 brúttórúmlestum greiði kr. 3.00 á brúttórúmlest, þó ekki oftar en tvisvar í mánuði.
d. Heimabátar, minni en 10 brúttórúmlestir, greiða lesta- og bryggjugjald einu sinni á ári, kr. 200.00 af hverri brúttórúmlest. Lágmarksgjald skal vera kr. 1000.00. Gjalddagi er 1. apríl, eftir að skipið hefur verið gert út Frá höfninni í 3 mánuði.
28. gr.
Öll skip, sem, leggjast við bryggju eða hafnarbakka, skulu greiða kr. 1.50 á brúttórúmlest fyrir hvern sólarhring eða hluta úr sólarhring, sem skipið liggur bundið.
Fiskiskip, 10-399 brúttórúmlestir, greiði gjald þetta eigi oftar en 10 sinnum á mánuði, en bátar minni en 10 brúttórúmlestir, greiði ekkert bryggjugjald.
Heimilt er að taka lesta- og bryggjugjald af fiskiskipum, minni en 400 brúttórúmlestir, sem ársgjald í heimahöfn, kr. 162.00 af hverri brúttórúmlest.
29. gr.
Vörugjald skal greiða af öllum vörum svo og skepnum, lifandi eða dauðum sem skipað er út og upp á hafnarsvæðinu, með þeim undantekningum, er síðar getur.
30. gr.
Fyrir vörur, sem samkvæmt farmskrá skips eru ákveðnar til hleðslu, og eiga því ekki að leggjast á land nema um stundarsakir, greiðist aðeins hálft gjald.
31. gr.
Þessar vörur eru algjörlega undanþegnar vörugjaldi:
a. Af vörum, sem lagðar eru á land um stundarsakir vegna skemmda á skipi og vörum, sem settar eru á land og eiga að fara með sama skipi, greiðist ekkert gjald.
b. Olía, kol, vistir og aðrar nauðsynjar skipa til eigin notkunar, sem fluttar eru úr landi. Enn fremur salt og ís, sem flutt er úr landi í íslenzk skip til eigin notkunar.
c. Umbúðir, sem endursendar eru, enda sé þess getið í farmskrá.
d. Bréfapóstur og farangur ferðamanna.
32. gr.
Hafnsögugjöld.
Öll erlend og innlend skip skulu skyld að greiða hafsögugjald í hvert sinn, sem þau koma á innri höfnina, hvort sem þau nota hafnsögumann eða ekki. Þó skulu innlend fiskiskip, sem ekki eru skrásett á Vopnafirði og eru minni en 500 brúttórúmlestir að stærð því aðeins greiða hafnsögugjald, að þau njóti leiðsagnar hafnsögumanns. Sömu undanþágu njóti fiskiskip skráð á Vopnafirði.
33. gr.
Hafnsögugjald skal greiðast sem hér segir:
a. Fyrir leiðsögn til hafnarinnar kr. 450.00 fyrir hvert skip, auk kr. 1.25 fyrir hverja brúttórúmlest.
b. Fyrir leiðsögn frá höfninni kr. 400.00 fyrir hvert skip, auk kr. 0.80 fyrir hverja brúttórúmlest.
e. Fyrir leiðsögn um innri höfnina, skal hvort skip greiða kr. 300.00 auk kr. 0.40 fyrir hverja brúttórúm,lest.
34. gr.
Vörugjöld.
Vörugjöld skal reikna eftir máli eða þyngd með umbúðum. Brot úr gjaldeiningu, sem nemur helmingi eða meira, telst heil gjaldeining. Fara skal eftir farmskrá skipa við ákvörðun og útreikning vörugjalds.
Skipstjóri er skyldur til að láta hafnarverði í té eftirrit af farmskrá skips síns. Sé engin farmskrá fyrir hendi, skal skipstjóri gefa drengskaparvottorð um vörumagn, sem skip hans hefur fermt eða afferent. Þyki hafnarnefnd ástæða til, getur hún, hvenær sem er, látið ákveða vörumagnið á þann hátt, sem, hún telur hentugast, svo sem vega afla á vog hafnarinnar gegn vigtargjaldi, sem hafnarnefnd ákveður. Reynist vörumagnið meira en upp var gefið, greiðir skipið kostnaðinn. Ef ýmsar vörutegundir eru í sömu sendingu og beri farmskrá ekki með sér greinilega sundurliðun í tegundir, skal reikna vörugjaldið eftir þeirri tegund, sem hæst vörugjald ber.
35. gr.
Vörur skal flokka til vörugjalds eftir því sem vörugjaldskrá segir til um, og greiða gjald, sem þar segir. Minnsta vörugjald skal vera kr. 10.00. Leiki vafi á í hvaða flokki skuli telja vöru, skal hafnarvörður skera úr um það, en úrskurði hans má áfrýja til hafnarnefndar.
36. gr.
Vörugjaldskrá
1. fl.: Gjald kr. 70.00/tonn:
a. Vara flutt í lausu máli í miklu magni, meira en 100 tonn í farmi t. d. benzín, brennsluolíur, kol, korn, salt, vikur.
b. Þungavarningur, sekkjavörur, óunnið járn og stál til iðnaðar eða mannvirkjagerðar, hráefni til iðnaðar, útgerðarvörur, smurningsolíur, sjávarafurðir, landbúnaðarafurðir og iðnaðarvörur til útflutnings.
2. fl.: Gjald kr. 150.00/tonn:
Iðnaðar- og byggingavörur, unnar og hálfunnar, pökkuð og niðursoðin matvæli, ávextir, vefnaðarvörur, fatnaður.
3. fl.: Gjald kr. 400.00/tonn:
a. Vélar og tæki hvers konar og varahlutir til þeirra, heimilisvélar og skrifstofuvélar, bifreiðar, bifhjól, reiðhjól, hjólbarðar, bátar, flugvélar, hreyflar, mælitæki, húsgögn.
Af flutningi vinnutækja innanlands má veita allt að 50% afslátt.
b. Útvarps- og sjónvarpstæki, hljóðfæri, úr, klukkur, myndavélar, sjónaukar, glysvarningur alls konar, vín, tóbak, ilmvötn, snyrtivörur.
c. Vörur, sem ekki verða flokkaðar annars staðar, eftir þyngd.
4. fl.: Gjald kr.40.00/rúmmeter: .
Timbur og annað eftir rúmmáli.
5. fl.: Gjald 1%:
Sjávarafli lagður á land á hafnarsvæðinu til vinnslu eða brottflutnings. Gjaldið reiknast af heildarverðmæti aflans. Kaupanda aflans ber að afhenda hafnarstjóra skýrslu um keyptan afla mánaðarlega, t. d. afrit af aflaskýrslu til Fiskifélags Íslands. Aflagjald fellur í gjalddaga, um leið og afla er landað. Kaupandi aflans innheimtir gjaldið hjá seljanda og er ábyrgur fyrir því til hafnarsjóðs, þótt hann vanræki innheimtu þess. Standa ber skil á greiðslu aflagjalds eigi sjaldnar en mánaðarlega.
Lágmarksgjald í öllum flokkum er kr. 20.00.
37. gr.
Ýmis gjöld til hafnarinnar.
Fyrir að leggja skip eða bát í fjöru hafnarinnar til hreinsunar eða aðgerðar skal greiða kr. 0.50 af hverri brúttólest skipsins eða bátsins fyrir hvern sólarhring eða hluta úr sólarhring, þó aldrei minna en kr. 50.00.
38. gr.
Fyrir að leggja vörur, sem affermdar eru, á land hafnarinnar, skal greiða kr. 1.00 fyrir hvern fermetra af landi því, sem varan liggur á, fyrir hvern sólarhring talið frá öðrum degi eftir að affermingu er lokið. Sama gjald skal greiða fyrir vörur, sem fluttar eru á land hafnarinnar og fara eiga í skip.
Fyrir lóðir hafnarinnar, geymsluhús og önnur mannvirki sem eru leigð einstökum mönnum eða félögum um lengri tíma, skal greiða gjald, sem ákveðið verður með samningi.
39. gr.
Ársleiga fyrir benzíntanka, olíutanka og dælur á hafnarsvæðinu, skal nema kr. 2 500.00 fyrir hvern.
Gjalddagi er 1. apríl ár hvert.
40. gr.
Fyrir vatn til skipa greiðist kr. 23.00 fyrir hverja smálest en minnsta gjald skal þó vera kr. 150.00 fyrir fiskiskip og kr. 300.00 fyrir önnur skip.
41. gr.
Önnur þjónusta, sem höfnin kann að láta skipum eða öðrum aðilum í té og ekki eru talin falla undir þau gjöld, sem hér eru að framan talin, skal greiða samkvæmt reikningi frá hafnarnefnd.
42. gr.
Um innheimtu og greiðslu gjalda.
Skrifstofa bæjarins sér um innheimtu hafnargjalda, og skal greiða gjöldin þar. 43. gr.
Skipstjóri, formaður eða eigandi ber ábyrgð á greiðslu hafnargjalda. Hafnarsjóður hefur haldsrétt í skipum, unz hafnargjöld eru greidd. Þegar gjalddagar eru ekki ákveðnir í reglugerð þessari, skal greiða gjöldin áður en skipið fer burt úr höfninni.
44. gr.
Leigugjald fyrir lóðir og geymsluhús hafnarinnar greiði móttakandi af vörum, sem fluttar eru úr húsum eða af lóð hafnarinnar.
Ef margir eiga vörur með sama skipi, skal afgreiðslumaður skipsins standa hafnarskrifstofu skil á greiðslunni.
Ef skip eða bátur hefur ekki farm sinn skráðan, ber skipstjóri, formaður eða eigandi ábyrgð á greiðslu vörugjaldsins.
Ef vörur eru fluttar úr einu skipi í annað, greiðir sá vörugjaldið, sem affermir. Vörugjald af vörum, sem koma til hafnarinnar, fellur í gjalddaga þegar gengið hefur verið frá farmskrá.
Vörugjald af vörum, sem fluttar eru frá bryggju að bólvirki, fellur í gjalddaga, þegar vörurnar eru komnar á skip.
Hafnarsjóður hefur haldsrétt í vörunum eða andvirði þeirra, unz gjaldið er greitt.
45. gr.
Leigu af lóðum hafnarinnar greiðir samningsaðili.
46. gr.
Gjald fyrir að nota krana, sporbrautir eða önnur tæki og áhöld greiðir sá, sem semur við hafnarnefnd um afnotin.
47. gr.
Öll gjöld samkvæmt reglugerð þessari m,á taka lögtaki, og hafa þau forgangsrétt sem önnur opinber gjöld, sbr. 83. gr. b, tölulið 3, skiptalaganna. Auk þess eru skipsgjöldin tryggð með lögveði í skipinu, og gengur það veð í tvö ár fyrir samningsveðskuldum.
Skipsgjöld teljast í reglugerð þessari öll þau gjöld, sem skipi ber að greiða til hafnarinnar, svo sem lestagjald, bryggjugjald og hafnsögugjald, svo og hvers konar aðstoð, sem skipinu er látin í té af hafnarinnar hálfu.
48. gr.
Um skaðabótaskyldu vegna skemmda á höfninni, mannvirkjum hennar, tækjum og útbúnaði, fer eftir almennum reglum.
Ef samningum verður ekki við komið um skaðabætur, má ákveða þær af tveimur óvilhöllum, dómkvöddum mönnum.
Hvorum aðila fyrir sig er heimilt að krefjast yfirmats, en gera skal það áður en einn mánuður er liðinn frá því er matsgerð er lokið. Yfirmat skal framkvæmt af þremur óvilhöllum dómkvöddum mönnum,. Kostnaðinn við yfirmat greiðir sá, sem krafðist yfirmats, ef það gengur ekki honum í vil. Að öðrum kosti greiðir hinn aðilinn kostnaðinn.
49. gr.
Engum, sem bakað hefur sér refsingu eða skaðabótaskyldu fyrir brot á regluger$ þessari heimilast að fara Burt úr höfninni meðan mál hans er óútkljáð, nema hann setji tryggingu, sem hafnarnefnd tekur gilds.
50. gr.
Hverja þá skipun, sem samkvæmt þessari reglugerð heimilast að gefa forráðamönnum skips, skal gefa stýrimanni ef skipstjóri er ekki á skipi, og eigi heldur umboðsmaður hans, samkvæmt 10. gr. Ef stýrimaður er fjarverandi, má gefa einhverjum öðrum af skipshöfninni skipunina og er það jafngilt því, sem skipstjóri hefði fengið skipunina sjálfur.
51. gr.
Brot gegn reglugerð þessari varða sektum allt að kr. 100 000.00 nema þyngri refsing liggi við samkvæmt almennum lögum. Sektirnar renna í hafnarsjóð.
52. gr.
Með mál út af reglugerð þessari skal fara að hætti opinberra mála.
Reglugerð þessi staðfestist hér með samkvæmt hafnalögum nr. 48 frá 29. apríl 1967, til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.
Jafnframt fellur úr gildi hafnarreglugerð fyrir Vopnafjarðarkauptún, nr. 33 25. febrúar 1949 sbr. reglugerð nr. 146 1. jú1í 1964 og reglugerð nr. 116 19. apríl 1968.
Samgönguráðuneytið, 9. janúar 1973.
Hannibal Valdimarsson.
Kristinn Gunnarsson