1. gr.
I. viðauki reglugerðarinnar, sem birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 71, 11. nóvember 2021, bls. 302 og öðlaðist gildi með reglugerð nr. 1348/2021, breytist í samræmi við framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1180 frá 11. janúar 2022 um leiðréttingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/45/EB um öryggisreglur og staðla fyrir farþegaskip sem birt var í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 72, 3. nóvember 2022, bls. 338.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 2. mgr. 40. gr. og 41. gr. skipalaga, nr. 66/2021 og öðlast þegar gildi. Reglugerðin er sett til innleiðingar á framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1180 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/45/EB um öryggisreglur og staðla fyrir farþegaskip. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 261/2022, frá 23. september 2022.
Innviðaráðuneytinu, 17. nóvember 2022.
F. h. r.
Ólafur Kr. Hjörleifsson.
Eggert Ólafsson.