1. gr.
Við reglugerðina bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða svohljóðandi:
Ákvæði til bráðabirgða.
Þrátt fyrir 2. málsl. 1. mgr. 19. gr. getur Samgöngustofa heimilað tímabundna innlögn á atvinnuleyfi til skemmri tíma en tveggja mánaða.
Ákvæði þetta fellur brott 31. maí 2020.
2. gr.
Lagastoð og gildistaka.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 13. gr. laga um leigubifreiðar nr. 134/2001, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 27. mars 2020.
Sigurður Ingi Jóhannsson.
Ragnhildur Hjaltadóttir.