255/2015
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 348/2007 um notkun öryggis- og verndarbúnaðar í ökutækjum.
1. gr.
Við 8. gr. reglugerðarinnar bætist nýr liður, c-liður, sem orðast svo:
-
Framkvæmdartilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2014/37/ESB frá 27. febrúar 2014 um breytingu á tilskipun ráðsins 91/671/EBE varðandi skyldubundna notkun öryggisbelta og aðhaldsbúnaðar fyrir börn í ökutækjum, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á XIII. viðauka við EES-samninginn nr. 228/2014 frá 24. október 2014. Tilskipunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 73 frá 4. desember 2014, bls. 569.
2. gr.
III. viðauki við reglugerðina breytist þannig:
-
Í stað texta í 1. mgr. viðaukans kemur svohljóðandi texti:
Öryggis- og verndarbúnaður barna í ökutækjum skal uppfylla kröfur samkvæmt:
-
reglum efnahagsnefndar Sameinuðu þjóðanna fyrir Evrópu (UNECE), ECE reglur nr. 44.04, sbr. og tilskipun 77/541/EBE um samræmingu laga aðildarríkjanna varðandi öryggisbelti og aðhaldsbúnað í vélknúnum ökutækjum að tækniframförum, með síðari breytingum, eða
-
reglum efnahagsnefndar Sameinuðu þjóðanna fyrir Evrópu (UNECE), ECE reglur nr. 129.
-
Í lok viðaukans bætist við ný málsgrein, 3. mgr., sem orðast svo:
Öryggis- og verndarbúnaður fyrir börn skal settur upp í samræmi við uppsetningarupplýsingar (t.d. notendahandbók, bækling eða upplýsingar á rafrænu formi) sem framleiðandi búnaðarins útvegar þar sem því er lýst hvernig og í hvaða gerðir ökutækis hægt er að nota búnaðinn með öruggum hætti.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 71. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, öðlast þegar gildi.
Innanríkisráðuneytinu, 2. mars 2015.
Ólöf Nordal.
Ragnhildur Hjaltadóttir.