1. gr.
Ákvæði um vægi brota í punktakerfi samkvæmt skrá í viðauka vegna brota á ákvæðum umferðarlaga eða reglum samkvæmt þeim breytist þannig í stað skrár um vægi brota í punktakerfi kemur ný skrá, svohljóðandi:
Lagagrein |
Tegund brots |
Punktafjöldi |
5. gr. |
Leiðbeiningar fyrir umferð. |
|
1. - 2. mgr.: |
Ekið gegn rauðu umferðarljósi |
2 |
Ekið gegn einstefnu |
1 |
|
Bann við framúrakstri eigi virt |
1 |
|
3. mgr.: |
Óhlýðni ökumanns við leiðbeiningum lögreglu |
2 |
10. gr. |
Skyldur við umferðaróhapp. |
|
1. mgr.: |
Eigi numið staðar og veitt hjálp |
2 |
2. mgr.: |
Vanrækt að tilkynna lögreglu um slys |
2 |
13. gr. |
Notkun akbrauta. |
|
1. mgr.: |
Ekið eftir gangstétt eða gangstíg |
1 |
17. gr. |
Að snúa ökutæki, aka aftur á bak og skipta um akrein. |
|
1. mgr.: |
Ökutæki bakkað eða snúið við þannig að hætta eða óþægindi skapast fyrir aðra |
1 |
18. gr. |
Akstur við biðstöð hópbifreiða o.fl. |
|
1. mgr.: |
Eigi virtur forgangur hópbifreiðar til aksturs frá biðstöð |
1 |
2. mgr.: |
Eigi sýnd sérstök aðgát í námunda við merkta skólabifreið sem hefur stansað o.fl. |
1 |
19. gr. |
Þegar ökutæki mætast. |
|
1. mgr.: |
Eigi vikið nægilega eða dregið úr hraða |
1 |
20. gr. |
Framúrakstur. |
|
1. mgr.: |
Ekið hægra megin fram úr |
1 |
Ekið vinstra megin fram úr ökutæki sem er að sveigja til vinstri |
1 |
|
2. mgr.: |
Eigi sýnd nægileg varúð við framúrakstur (a-d liðir) |
1 |
21. gr. |
||
1. mgr.: |
Eigi vikið nægilega eða framúrakstur torveldaður |
1 |
22. gr. |
Bann við framúrakstri. |
|
1. mgr.: |
Ekið fram úr við eða á vegamótum |
1 |
2. mgr.: |
Ekið fram úr þegar vegsýn er skert |
1 |
24. gr. |
Framúrakstur við gangbraut. |
|
Ekið fram úr rétt áður en komið er að gangbraut eða á henni |
2 |
|
25. gr. |
Skylda til að veita öðrum forgang. |
|
2. mgr.: |
Eigi virt: |
|
- biðskylda |
1 |
|
- stöðvunarskylda |
2 |
|
4. mgr.: |
Eigi virtur almennur forgangur á vegamótum o.fl. (hægri reglan) |
2 |
26. gr. |
Sérstakar skyldur gagnvart gangandi vegfarendum. |
|
5. - 6. mgr.: |
Gangbrautarréttur eigi virtur |
2 |
32. gr. |
Ljósanotkun. |
|
2. mgr.: |
Ökuljós eigi tendruð þegar birta er ófullnægjandi |
1 |
36. gr. |
Almennar reglur um ökuhraða. |
|
1. - 3. mgr.: |
Ökuhraði eigi miðaður við aðstæður |
2 |
37. - 38. gr. |
Almennar hraðatakmarkanir og ökuhraði sérstakra gerða ökutækja. |
|
Hámarkshraði 30-35 km/klst.: |
||
Ekið 16-20 km/klst. yfir leyfilegum hámarkshraða |
1 |
|
Ekið 21-25 km/klst. yfir leyfilegum hámarkshraða |
2 |
|
Ekið 26 km/klst. eða meira yfir leyfilegum hámarkshraða |
3 |
|
Hámarkshraði 40 km/klst.: |
||
Ekið 21-25 km/klst. yfir leyfilegum hámarkshraða |
1 |
|
Ekið 26-30 km/klst. yfir leyfilegum hámarkshraða |
2 |
|
Ekið 31 km/klst. eða meira yfir leyfilegum hámarkshraða |
3 |
|
Hámarkshraði 50-60 km/klst.: |
||
Ekið 26-30 km/klst. yfir leyfilegum hámarkshraða |
1 |
|
Ekið 31-35 km/klst. yfir leyfilegum hámarkshraða |
2 |
|
Ekið 36 km/klst. eða meira yfir leyfilegum hámarkshraða |
3 |
|
Hámarkshraði 70 km/klst.: |
||
Ekið 26-30 km/klst. yfir leyfilegum hámarkshraða |
1 |
|
Ekið 31-40 km/klst. yfir leyfilegum hámarkshraða |
2 |
|
Ekið 41 km/klst. eða meira yfir leyfilegum hámarkshraða |
3 |
|
Hámarkshraði 80-90 km/klst.: |
||
Ekið 21-30 km/klst. yfir leyfilegum hámarkshraða |
1 |
|
Ekið 31-40 km/klst. yfir leyfilegum hámarkshraða |
2 |
|
Ekið 41 km/klst. eða meira yfir leyfilegum hámarkshraða |
3 |
|
41. gr. |
Bifhjól. |
|
Brot á sérreglum fyrir bifhjól |
1 |
|
47. gr. a |
Notkun farsíma við akstur. |
|
1. mgr.: |
Notkun farsíma án handfrjáls búnaðar við akstur bifreiðar |
1 |
48. gr. |
Ökupróf og ökuskírteini. |
|
1. mgr.: |
Akstur bifreiðar eða bifhjóls án þess að hafa öðlast ökurétt: |
|
- í fyrsta sinn |
1 |
|
- í annað sinn |
2 |
|
71. gr. |
Öryggisbelti. |
|
1. mgr.: |
Öryggisbelti ekki notað |
1 |
2. mgr.: |
Sérstakur öryggisbúnaður fyrir barn ekki notaður |
1 |
6. mgr.: |
Þess eigi gætt að farþegi yngri en 15 ára noti öryggis- eða verndarbúnað skv. 1. - 4. mgr. |
1 |
72. gr. |
Hlífðarhjálmar. |
|
1. mgr.: |
Viðurkenndur hlífðarhjálmur ekki notaður |
1 |
2. mgr.: |
Þess eigi gætt að farþegi yngri en 15 ára noti hlífðarhjálm |
1 |
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 2. mgr. 52. gr. og 2. mgr. 101. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Innanríkisráðuneytinu, 28. ágúst 2014.
Hanna Birna Kristjánsdóttir
innanríkisráðherra.
Ragnhildur Hjaltadóttir.